Félagsþjónustan í Fjarðabyggð auglýsir eftir starfsmanni í afleysingar við félagsstarf aldraðra á Norðfirði.
Áhersla er lögð á færni í mannlegum samskiptum og æskilegt er að kunna til verka við hand- og myndmennt, það er þó ekki skilyrði.
Laun eru samkvæmt samningum Launanefndar sveitafélaga og viðkomandi stéttarfélags. Viðkomandi þarf að geta hafið störf nú þegar.
Nánari upplýsingar veitir Sigrún Þórarinsdóttir félagsráðgjafi í síma 470-9000 eða tölvupósti sigrun.thorarinsdottir@fjardabyggd.is