Tillaga að breytingu á aðalskipulagi og deiliskipulagi á Fáskrúðsfirði



Tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2007-2027 og
deiliskipulagi hafnarsvæðis á Fáskrúðsfirði

 

Bæjarstjórn Fjarðabyggðar auglýsir hér með tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2007-2027 skv. 2. mgr. 21. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 m.s.br.  Tillagan nær til þéttbýlisins á Fáskrúðsfirði og felst í að athafnasvæði A2, neðan Hafnargötu, er stækkað inn á hafnar- og iðnaðarsvæði H3/I1 og H4/I3. Á svæðinu er verði verslunar- og þjónustustarfsemi heimil auk athafnastarfsemi. Einnig er gert ráð fyrir lítilsháttar breytingu á mörkum miðsvæðis M1 og íbúðarsvæðis Í2.

 

Samhliða tillögu að aðalskipulagsbreytingu er auglýst tillaga að breytingu á deiliskipulagi hafnarsvæðis á Fáskrúðsfirði frá 1997, skv. 1. mgr. 26. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 m.s.br. Í deiliskipulagstillögunni er gert ráð fyrir nýjum byggingarreitum vegna flutnings og endurbyggingar Franska spítalans og tilheyrandi bygginga á svæðinu. Einnig er gert ráð fyrir lítilli bryggju í fjörunni.

 

Breytingartillögurnar eru til sýnis á bæjarskrifstofum Fjarðabyggðar, Hafnargötu 2, Reyðarfirði, og í þjónustugátt Fjarðabyggðar í bókasafninu á Fáskrúðsfirði. Tillagan að aðalskipulagsbreytingunni er til sýnis frá og með 23. júní til og með 14. júlí 2010.  Athugasemdafrestur er til sama tíma. Tillagan að deiliskipulagsbreytingunni er til sýnis frá og með 23. júní til og með 4. ágúst 2010.  Athugasemdafrestur er til sama tíma.

 

Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillögurnar.  Skila skal athugasemdum á bæjarskrifstofur Fjarðabyggðar, Hafnargötu 2, 730 Reyðarfirði. Hver sá sem eigi gerir athugasemdir við breytingartillögurnar fyrir tilskilinn frest telst samþykkur henni.

 

 

Umhverfisstjóri Fjarðabyggðar

 

-
| Meira