Gillian Haworth, skólastjóri Tónlistarskóla Eskifjarðar og Reyðarfjarðar lék á óbó með Sinfóníuhljómsveit Íslands í gærkvöldi í tónlistarhúsinu Hörpu.
Á tónleikunum var flutt sjötta sinfónía Mahlers, sem er samin fyrir risavaxna hljómsveit og er talið eitt áhrifamesta verk höfundarins. Stjórnandi var Osmo Nanska og einsöngvari finnska sópransöngkonan Helena Juntunen.
Tónleikunum var útvarpað á rás 1 og hægt verður að hlusta á upptökuna næstu 2 vikur á slóðinni http://www.sinfonia.is/hljod-og-mynd/hljod/upptoku/
Við óskum Dillý innilega til hamingju með þennan glæsilega áfanga og óskum henni velfarnaðar.