Dagur leikskólans haldinn hátíðlegur á Lyngholti líka

 

Þann 6. febrúar n.k. er dagur leikskólans, en þann dag árið 1950 stofnuðu frumkvöðlar leikskólakennara fyrstu samtök sín. Þetta er þriðja árið í röð sem leikskólar halda daginn hátíðlegan. Daginn ber að þessu sinni upp á laugardag og því er mælst til þess að honum verði fagnað í leikskólum föstudaginn 5. febrúar. Leikskólakennarar munu þennan sama dag fagna 60 ára afmæli félagsins m.a. með útgáfu veglegs afmælisrits.

Dagur leikskólans er samstarfsverkefni Félags leikskólakennara, mennta- og menningarmálaráðuneytis, Sambands íslenskra sveitarfélaga og Heimilis og skóla. Tilgangurinn er að auka jákvæða umræðu um leikskólann, vekja umræðu um hlutverk leikskóla og starf leikskólakennarans.

Við hér í Lyngholti ætlum að halda upp á daginn þann 5.febrúar en þá bjóðum við eldri borgurum í sólarkaffi kl. 14:00. Í næstu viku ætlum við einnig að hengja upp myndir eftir nemendur víðs vegar um bæinn. Listaverkin verða á eftirfarandi stöðum: Greniholtsmyndir í Íslandsbanka, Asparholtsmyndir á Hárstofu Sigríðar, Birkiholtsmyndir í Molanum og Furuholtsmyndir í Sparisjóðnum og á Búðareyri 6 (Birta, Herta og VÍS).

-
| Meira