Fyrstu verðlaun Fjarðabyggðar á Íslandsmóti í knattspyrnu - Gott silfur gulli betra

Þriðji flokkur  karla tók þátt í úrslitakeppni Íslandsmótsins í Futsal um helgina.  Strákarnir í Fjarðabyggð / Leikni stóðu sig með prýði og enduðu í 2. sæti eftir hörku úrslitaleik við Fylki.  Liðið byrjaði  riðlakeppnina á því að vinna HK 2-0 og Kormák 4-0 en töpuðu síðan fyrir Fylki 2-1.  Í undanúrslitaleiknum unnu strákarnir Hamar/Ægi 4-2  en töpuðu úrslitaleiknum við Fylki 3-2. 

Í liðinu sem keppti fyrir hönd Fjarðabyggðar/Leiknis voru þeir Arek, Arnar, Ásbjörn Huldar, Bergsteinn, Birkir Einar, Björgvin Snær, Fannar Bjarki, Guðmundur Arnar, Ingimar Guðjón og Tadas.
-
| Meira