STÓRI PLOKKDAGURINN SUNNUDAGINN 28. APRÍL
22.04.2024Stóri plokkdagurinn verður haldinn með pompi og prakt um allt land sunnudaginn 28. apríl næstkomandi.
Það er Rótarýhreyfingin á Íslandi sem skipuleggur daginn með aðstoð og atfylgi góðra bakhjarla. Markmið Rótarýhreyfingarinnar er að dagurinn sé ætlaður öllum sem vilja skipuleggja hreinsunarátak á þeim degi, eða eftir atvikum öðrum degi á svipuðum tíma. Þannig er öllum heimilt að nota merki dagsins og myndefni tengt honum til kynningar á verkefnum tengdum plokki og umhverfishreinsun.
Allir mega stofna viðburði á Stóra Plokkdaginn á samfélagsmiðlum, tengja þá við Plokk á Íslandi, fá merkingar frá Plokk á Íslandi.