Skipulag sjúkraflutninga í Fjarðabyggð

Slökkvilið Fjarðabyggðar tók á miðju ári 2007 að sér alla sjúkraflutninga í Fjarðabyggð skv. samningi við Heilbrigðisstofnun Austurlands. Rauði Kross Íslands leggur til fjórar sjúkrabifreiðar staðsettar á Norðfirði, Reyðarfirði og Fáskrúðsfirði. Að auki er varasjúkrabifreið fyrir Austurland staðsett í höfuðstöðvum  slökkviliðsins í Öryggismiðstöðinni að Hrauni.

 

Slökkviliðið leggur sig fram um að halda uppi öryggi almennings og tryggja sem best að staðið sé við þann viðbragðstíma sem samningur um sjúkraflutninga kveður á um. Af þeim sökum er  viðvera sjúkrabifreiða skipulögð þannig að þær séu ekki fjarverandi af sínu svæði um lengri tíma vegna flutninga út fyrir svæðið sem ekki eru neyðar- eða forgangsflutningar. Þetta eru flutningar vegna t.d. sjúkraflugs eða millistofnanaflutninga þar sem unnt er að skipuleggja flutninga með fyrirvara og jafnvel stýra tímasetningum þeirra. Þessum flutningum er sinnt frá Öryggismiðstöðinni að Hrauni þegar unnt er. Þar eru menn á vakt allan sólarhringinn og yfirleitt þrjár sjúkrabifreiðar til staðar. Á dagvinnutíma eru að jafnaði 5 – 7 menn þar við störf og geta þá séð um flutninga vegna sjúkraflugs og millistofnanaflutninga. Á Norðfirði og Fáskrúðsfirði eru hlutastarfandi sjúkraflutningamenn sem sjá um sjúkraflutninga. Þeir hafa aðalatvinnu sína af öðrum störfum en sinna sjúkraflutningum í aukastarfi. Þeir fá greitt fyrir öll útköll í yfirvinnu. Með því að nýta þá menn sem eru í vinnu á dagvinnutíma í Öryggismiðstöðinni sparast því yfirvinna og þar með verður nokkur hagræðing í rekstri slökkviliðsins.

 

Þetta skipulag var tekið upp í haust og hefur gengið ágætlega upp. Það hefur í för með sér aukið öryggi fyrir almenning, betri nýtingu á starfskröftum slökkviliðsins, sparar launakostnað og veldur minni truflun á öðrum daglegum störfum hlutastarfandi sjúkraflutningamanna slökkviliðsins sem þó þurfa oft að fórna miklum tíma til að geta sinnt þessari mikilvægu þjónustu fyrir samfélagið. Hlutastarfandi sjúkraflutningamönnum hefur gefist kostur á að leysa af á vöktum á Öryggismiðstöðinni á Hrauni. Þannig er komið til móts við lækkun heildarlauna þeirra við þessa breytingu, aukin tengsl verða á milli starfsmanna slökkviliðsins og þeir fá meiri þjálfun og starfsreynslu.

-
| Meira