Í vetur hafa starfsmenn bæjarins unnið hörðum höndum við að klippa tvítoppa í skógræktarsvæðum. Tvítoppaklipping er mjög mikilvæg á þeim svæðum þar sem hafin er skógrækt á nöktu landi.
Þegar plönturnar eru að ná sér á strik skemmast topparnir oft t.d. vegnar skara, kals, eða jafnvel vegna þess að ekið er yfir svæðið á snjósleða. Afleiðingin verður að plantan myndar tvo eða fleiri toppa. Til skamms tíma seinka tvítopparnir fyrir þroska plöntunnar en til langs tíma veldur tvítoppurinn því að tréð klofnar og eyðileggst.
Síðastliðin þrjú ár hefur starfsmenn bæjarins m.a. unnið þessi verk á tímabilinu nóvember – mars ár hvert. Þessa dagana er unnið við grisjun í Norðfirði og á Eskifirði.
Sjá um mynd af tvítoppaklippingu á skograd.is