Golfvöllur Eskifirði
 Nýr golfvöllur 730
 

Grænanesvöllur á Norðfirði 

 

Byggingarár 1965
Holur 9
Par 70

 

Golfvöllur Golfklúbbs Norðfjarðar, Grænanesvöllur, er inn af botni fjarðarins.  Skemmtilegur og vel hirtur völlur í fallegu umhverfi. Ekið að vellinum eftir afleggjara til móts við býlið Miðbæ. Daggjald á vellinum er kr. 2.500. Sími í golfskála  477 1165.   Sjá einnig heimasíðu klúbbsins

 


Byggðarholtsvöllur á Eskifirði

 

Byggingarár 1976
Holur 9
Par 66

 

Golfvöllur Golfklúbbs Eskifjarðar, Byggðarholtsvöllur,  er sunnan við Eskifjarðará, innan byggðarinnar. Völlurinn er í fjölbreyttu umhverfi og skemmtilegur að spila.  Daggjald á vellinum er kr. 2.000 og ókeypis fyrir börn yngri en 15 ára.  Völlurinn er að sjálfsögðu opinn allt sumarið og eins lengi og tíð leyfir á haustin.  Allar upplýsingar eru veittar í golfskála félagsins á daginn. Sjá einnig heimasíðu klúbbsins

 


 

Golfvöllurinn á Reyðarfirði

 

Byggingarár 2009
Holur 9
Par 29

 

Nýr völlur að Kollaleiru fyrir ofan tjaldsvæðið rétt innan við bæinn.  Sjá einnig heimasíðu Golfklúbbs Fjarðabyggðar




Einnig eru æfingasvæði fyrir golfara á Fáskrúðsfirði og Stöðvarfirði.