Mótum framtíðina saman - íbúaþing 2004
16.6.2004 | 15.17
Árið 1999 fór fram athyglisverð stefnumótunarvinna í Fjarðabyggð, sem skilaði sér í ritinu
Framtíðarsýn 2010. Þar hefur margt náð fram að ganga, en stærsta breytingin er þó sú, að þar var ekki gengið út frá tilkomu álvers í vinnu við þá framtíðarsýn. Árið 2004 var ár liðið frá undirritun samninga um Kárahnjúkavirkjun og álver Alcoa á Reyðarfirði, vildi bæjarstjórn heyra sjónarmið íbúanna um framtíðina og gefa þeim kost á að vera virkir þátttakendur í mótun framtíðarsýnar. Í þeim tilgangi var ákveðið að boða til íbúaþings. Ráðgjafafyrirtækið Alta aðstoðaði Fjarðabyggð við íbúaþingið upp Niðurstöðuvefur um íbúaþingið er á slóðinni
www.ibuathing.is . Þar er gerð grein fyrir íbúaþinginu sem haldið var 17. apríl 2004 og nálgast greinagerð það og allar´nánari upplýsingar.