Kambanes
Milli Breiðdals og Stöðvarfjarðar liggja þrennar brattar skriður ofan úr Súlum og var þjóðvegur lagður um þær 1962. Talið frá Breiðdal og austur út heita þær, Færivallaskriður, Hvalnesskriður og Kambaskriður. Kambanes er tilvalið til útivistar, enda er landslag þar mjög fagurt þar sem Súlurnar rísa tignarlega yfir.
Stöð - Stöðvarfirði
Kirkja hefur að öllum líkindum verið í Stöð frá öndverðu. Árið 1907 var Stöðvarsókn lögð undir Heydalasókn og árið 1926 var kirkjan flutt út í þorp. Sr. Guttormur Vigfússon var síðasti prestur í Stöð, en hann lét af prestskap 1925 og þá kom sameiningin við Heydalasókn til framkvæmda.
Einbúi í Jafnadal
Einbúi er svo til innst í Jafnadal sem gengur inn út Stöðvarfirði. Einbúi samanstendur af nokkrum sérstæðum stórum steinum sem standa stakir í annars sléttu umhverfi.
Steinasafn Petru - Stöðvarfirði
Steinasafn Petru Sveinsdóttur á Stöðvarfirði er fyrir löngu orðið landsfrægt, enda er heimssókn í garðinn hjá Petru ógleymanleg þeim sem þangað koma.
Gamla kirkjan - Stöðvarfirði
Gamla kirkjan á Stöðvarfirði sendur reisuleg yfir þorpinu og er eitt af sérkennum þess. Kirkjan var afhelguð árið 1991, þegar nýja kirkjan sem stendur utar í þorpinu var tekin í notkun. Nú er ferðaþjónustan Kirkjubær rekin í Gömlu kirkjunni.
Stórkerald, Tyrkjaurð - Stöðvarfirði
Framan í fjallinu Steðja, sem er fyrir ofan þorpið, er stór geil inn í fjallið sem heitir Stórkerald. Þangað er sagt að Stöðfirðingar hafii flúið undan Tyrkjum og rutt síðan yfir þá grjótii þegaar þeir sóttu að þeim. Urðin framan við Stórkeraldið heitir því Tyrkjaurð.
Saxa - Stöðvarfirði
Skammt frá eyðibýlinu Bæjarstöðum utan við Lömd er niður við sjó klettaskoran Saxa. Sérstakt náttúrufyrirbrigði, þar sem útafssaldan gengur inn í klettaskoru og spýtist síðan hátt upp í loft í tilkomumiklum brimgosum. Nafnið mun vera af því dregið að þönglar og þari sem í gegn fara eru saxaðir í smátt.
Hafnarnes
Á 19. öld reis í Hafnarnesi þorp sem átti afkomu sína aðalega af sjósókn. Flestir munu íbúarnir hafa orðið rétt rúmlega 100 í upphafi 20. aldar. Samkvæmt fasteignarmati árið 1918 eru skráð 12 íbúðarhús í þorpinu, en byggðin lagðist að mestu niður á 7. og 8. áratugnum. Í dag má finna þar ýmsar minjar um þessa byggð.
Franski spítalinn - Fáskrúðsfirði
Franski spítalinn er stórt og reisulegt hús í Hafnarnesþorpi, en þangað var húsið flutt árið 1939 og notað sem fjölbýlishús. Húsið var upphaflega reist í Búðakauptúni árið 1903 sem sjúkrahús fyrir franska sjómenn. Ákveðið hefur verið að endurbyggja húsið.
Sandfell - Fáskrúðsfirði
Sandfell er líparítfjall sem stendur sunnan megin í Fáskrúðsfirði. Þegar líparítkvika treðst á milla hraunlaga myndast bergeitill eins og Sandfell er. Bergeitillinn er talinn vera um 600 m. þykkur og þykir eitt besta sýnishorn frá tertíertíma á norðurhveli jarðar.
Búðakauptún í Fáskrúðsfirði
Í Búðakauptúni eru fjöldi gamalla húsa sem búið er að endurbyggja og sitja þau skemmtilegan svip á bæinn. Ýmsar minjar eru þar frá dögum franskra sjómanna eins og bústaður franska consulsins, síðar héraðslæknisbústaður og nú ráðhús Búðahrepps.
Franski kirkjugarðurinn í Fáskrúðsfirði
Nokkru fyrir utan Búðakauptún við Krosseyri í landi Kappeyrar er kirkjugarður frá tímum franskra sjómanna við Íslandsstrendur. Í garðinum eru þekktar 49 grafir franskra sjómanna.
Kolfreyjustaður - Fáskrúðsfirði
Kolfreyjustaður hefur frá fronri tíð verið prestsetur Fáskrúðsfirðinga. Árið 1913 var sókninni skipt í tvennt og kirkja reist í Búðakauptúni, en báðum sóknunum áfram þjónað frá Kolfreyjustað. Sóknarkirkjan á Kolfreyjustað var byggð 1878 en hún hefur verið endurbyggð.
Skrúður - Fáskrúðsfirði
Úti fyrir austurströnd Fáskrúðsfjarðar eru þrjár eyjar, Æðasker, Andey og Skrúður. Skrúðurinn rís glæsilega hátt úr sjó eins og nafn hans ber merki um. Vel þekktar eru sagnirnar af bóndanum í Skrúðnum, en hann var einn þriggja bræðra, risana í Skrúðskambi við Streitishvarf og í Papey. En þeir bræður sáu hver til annars og gátu kallað sín á milli.
Fólkvangur Norðfirði
Stuttar gönguleiðir og áhugaverðir staðir s.s. Páskahellir og Urðir. Þar er fræðslustígur með ábendingum um ýmis náttúrufyrirbæri. Skemmtilegur útivistarstaður.
Hengifoss - Norðfirði
Hæsti foss í Norðfirði fellur í samnefndri á úr Oddsdalnum niður í Seldal í afar fallegu og gróðursælu gljúfri.
Rauðubjörg - Norðfirði
Falleg líparítbjörg á Barðsnesi við Norðfjarðarflóa. Norðfirðingar hafa löngum sagt að ef sólin glampar á Rauðubjörg að kvöldi viti það á gott veður næsta dag.
Hellisfjörður
Fallegur og gróðursæll eyðifjörður sem gengur inn úr Norðfjarðarflóa. Þar má enn sjá leifar gamallar hvalstöðvar sem starfrækt var í byrjun 20. aldar.
Viðfjörður
Syðstur fjarðanna þriggja við Norðfjarðarflóa.
Þórbergur Þórðarson skrifaði bókina Viðfjarðarundrin, um mikinn draugagang sem átti sér stað í Viðfirði. Allt fram á síðustu ár hafa menn orðið varir við undarlegar uppákomur í þessum ævintýralega firði.
Sandvík
Eyðivík norðan við Gerpi, þar sem áður var austasta byggða ból á landinu. Við Sandvík er kenndur draugurinn Glæsir, sem fylgir gjarnan Sandvíkingumog tekur ofan höfuðið þegar hann heilsar fólki.
Gerpir
Austasti oddi landsins og sennilega elsti hluti Íslands
Vöðlavík
Eyðivík sunnan Gerpis þar sem áður var fjöldi bæja. Mikil og skemmtileg sandfjara er í víkinni. Þar hafa orðið hörmuleg sjóslys. Til Vöðlavíkur er jeppavegur.
Silfurbergsnáman Helgustöðum - Eskifirði
Einhver kunnasta silfurbergsnáma í heiminum. Þar var silfurberg grafið úr jörðu frá því á 17. öld og fram á fyrri hluta 20. aldar. Þaðan er komið mest af því silfurbergi sem er að finna á söfnum víða um heim. Einnig var silfurbergið notað í ýmis tæki, s.s. smásjár, áður en gerviefni komu til. Helgustaðanáman er nú friðlýst sem náttúruvætti.
Hólmanes
Fólkvangur á nesinu milli Reyðarfjarðar og Eskifjarðar. Mikið fuglalíf og sékennilegar bergmyndanir. Afar ánægjulegur staður til útiveru, hvort sem er í klettum eða fjöru.
Völvuleiðið
Efst í Hólmahálsinum, nokkru ofan við veginn er leiði völvunnar sem hefur verndað Reyðarfjörð og Eskifjörð fyrir utanaðkomandi árásum um aldir.