Fjarðaferðir
Fjarðaferðir bjóða upp á siglingar á vel útbúnum bát frá Norðfirði um Norðfjarðarflóa, eyðifirðina Hellisfjörð og Viðfjörð.  Hægt er að leigja bátinn fyrir stóra sem smáa hópa.  Fjarðaferðir sjá einnig um áætlunarferðir milli Mjóafjarðar og Norðfjarðar tvisvar í viku. 
Bátaleiga er við Randulffssjóhús á Eskifirði í umsjón Ferðaþjónustunnar Mjóeyri.  Þar er hægt að leigja sér bát og sigla sjálfur um Eskifjörð.  Einnig stendur til boða sigling á fiskibáti, bæði útsýnis- og veiðiferðir, frá Stöðvarfirði hjá Kirkjubæ.

Fjarðaferðir, www.fjardaferdir.is, sími: 864 7410
Mjóeyri, www.mjoeyri.is, sími: 477 1247/698 6980
Kirkjubær, www.simnet.is/birgiral, sími 475 8819

Firðirnir í Fjarðabyggð eru ævintýraheimur kajakræðaranna.  Góða aðstaðað er fyrir kajakræðara á Norðfirði. Kajakklúbburinn Kaj, Norðfirði, sími: 863 9939