Tjaldaðu frítt á fimm fallegum tjaldsvæðum í Fjarðabyggð
Í Fjarðabyggð eru skipulögð tjaldsvæði á öllum sex þéttbýlisstöðunum og þau eru öll ókeypis nema í Mjóafirði. Á öllum tjaldsvæðunum er góð aðstaða til að grilla og leiksvæði fyrir börnin.
Tjaldsvæðið er í umsjón ferðaþjónustunnar Sólbrekku. Tjaldsvæðið er í kyrrð og ró í fallegu umhverfi. Á tjaldsvæðinu er hreinlætisaðstaða og sturtur.