Fjármálasvið hefur umsjón og eftirlit með fjármálalegri starfsemi sveitarfélagsins og stofnana þess. Þar með talið innheimtu og álagningu gjalda, undirbúning að gerð fjárhagsáætlunar, eftirlit með ráðstöfun fjárveitinga stofnana innan ársins og færslu bókhalds fyrir bæjarsjóð og stofnanir hans, ásamt kostnaðareftirliti og innkaupastjórn. Gerð ársreiknings fyrir bæjarsjóð og stofnanir.