Í samþykktum um stjórn Fjarðabyggðar IV. kafla er fjallað um nefndir sveitarfélagsins. Bæjarstjórn kýs fulltrúa í nefndir, ráð og stjórnir eftir því sem lög, reglugerðir og samþykktir kveða á um. Jafnframt kýs bæjarstjórn nefndum og ráðum formann og varaformann. 55. grein samþykktanna kveður á um þessar nefndir og hlutverk þeirra en auk þeirra eru skipaðar verkefnabundnar nefndir um afmörkuð verkefni.  Aðalnefndir sinna faglegu starfi skv. samþykkturm.  Nöfn og hlutverk aðalnefnda sveitarfélagsins breytast eftir áherslum bæjarstórnar hverju sinni.

 

 

Aðalnefndir 2010 - 2014 

Bæjarráð
Atvinnu- og menningarmálanefnd
Barnaverndarnefnd
Félagsmálanefnd
Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd
Fræðslu- og frístundanefnd
Hafnarstjórn
  

Kjörstjórnir

  • Yfirkjörstjórn
  • Undirkjörstjórn á Mjóafirði
  • Undirkjörstjórn í Neskaupstað
  • Undirkjörstjórn á Eskifirði
  • Undirkjörstjórn á Reyðarfirði
  • Undirkjörstjórn á Fáskrúðsfirði
  • Undirkjörstjórn á Stöðvarfirði


Stjórnir og samstarfsráð

Fulltrúar í stjórnum stofnana með sjálfstæðan fjárhag og tilnefningar í samstarfsráð sem hafa endanlegt ákvörðunarvald í málefnum sínum. Kjörtímabil þeirra er samkvæmt samþykktum um stjórn viðkomandi stofnunar.

  • Almannavarnarnefnd Fjarðabyggðar
  • Vettvangsstjórn Eskifjarðar og Reyðarfjarðar
  • Vettvangsstjórn Neskaupstaðar
  • Stjórn Hulduhlíðar
  • Stjórn Náttúrustofu Austurlands
  • Starfskjaranefnd
  • Stjórn Lífeyrissjóðs Neskaupstaðar
  • Stjórn Sjóminjasafns Austurlands
  • Stjórn Héraðsskjalasafns Austfirðinga

Tilnefningar og kosningar

Fulltrúar á ársþing og ársfundi stofnana sem bæjarfélagið á aðild að. Kosning fer fram á 1. fundi bæjarstjórnar og svo árlega eftir því sem við á. 

  • Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga
  • Aðalfundur Sambands sveitarfélaga í Austurlandskjördæmi
  • Fulltrúaráð Eignarhaldsfélags Brunabótafélags Íslands
  • Aðalfundur Heilbrigðiseftirlits Austurlands
  • Aðalfundur Atvinnuþróunarsjóðs
  • Aðalfundur Þróunarsjóðs Austurlands
  • Aðalfundur Safns Jósafats Hinrikssonar
  • Aðalfundur Skólaskrifstofu Austurlands


Embættismenn

Kosnir embættismenn samkvæmt lögum og reglugerðum.

  • Fjallskilastjóri
  • Búfjáreftirlitsmaður
  • Skoðunarmenn ársreikninga

 

Verkefnabundnar nefndir

Bæjarstjórn getur skipað nefndir til að vinna að einstökum afmörkuðum verkefnum. Umboð slíkra nefnda fellur niður sjálfkrafa við lok kjörtímabils, eða fyrr eftir því sem verkefni þeirra gefa tilefni til eða umboð eða erindisbréf veitir þeim.