Síðustu ár hafa verið ár mikilla umsvifa hér í Fjarðabyggð. Mikið hefur verið byggt af nýjum húsum og fjölbýlishúsum og hafa t.d. Reyðarfjörður og Eskifjörður breyst mikið á undanförnum árum.  Umhverfið ber þess víða merki, einkum á Reyðarfirði vegna óhemju efnisflutninga og á Eskifirði vegna hitaveituframkvæmda. 

Á árunum 2006 - 2009 var unnið að fyrsta aðalskipulaginu fyrir sex fjarða Fjarðabyggð og gildir það til ársins 2027.