Esbjerg í
Danmörku





Eskilstuna
 í Svíþjóð

  Jyvaskyla
í Finnlandi
 
 




 Stavanger
í Noregi
 
   Gravelines 
íFrakklandi
Vinabæir eru sveitarfélög á Norðurlöndum, eitt frá hverju landi sem mynda vinabæjakeðju. Hlutverk vinabæjanna er að miðla reynslu á sem flestum sviðum,styrkja menningartengsl og efla almenn samskipti. Samstarf Fjarðabyggðar við vinabæina hefur einkum verið á sviði sveitarstjórnarmála,menningar- og æskulýðsmála.

 

Á sjöunda ártugnum gerðist Neskaupstaður formlega aðili að norrænu vinabæjakeðjunni og tók Fjarðabyggð yfir vinabæjasamskiptin við sameiningu sveitarfélaganna.Vinabæir Fjarðabyggðar eru:

Einnig hefur Fjarðabyggð vinabæjasamskipti við bæina Sandavog í Færeyjum og Maniitsup á Grænlandi.


Þegar Fáskrúðsfjörður sameinaðist Fjarðabyggð bættist Gravelines  í Frakklandi í vinabæjarhópinn.  Á hverju ári kemur sendinefnd frá Graveline til að taka þátt í  Frönskum dögum á Fáskrúðsfirði.  Í Graveline er Íslandshátíð í september ár hvert og hafa fulltrúar Austurbyggðar og eftir sameininguna  Fjarðabyggðar mætt á hana.