Steinaríkið
Upphaf þéttbýlismyndunar á Stöðvarfirði má rekja til ársins 1896, þegar Carli Guðmundssyni var veitt leyfi til verslunarreksturs þar. Áður höfðu búið þar útvegsbændur um langan tíma, enda gjöful fiskimið skammt út af firðinum. Þegar verslun hófst á Stöðvarfirði tilheyrði byggðarlagið Breiðdalshreppi en tíu árum síðar var stofnað sérstakt sveitarfélag, Stöðvarhreppur, en er nú hluti Fjarðabyggðar. Götukort af Stöðvarfirði
Fiskvinnsla og fiskveiðar er höfuðatvinnuvegur Stöðfirðinga eins og títt er í litlum sjávarplássum á Íslandi. Þar var um langt skeið rekin togaraútgerð og frystihús með aðaláherslu á bolfiskvinnslu. Nú er þar einungis saltfiskverkun. Á Stöðvarfirði er lítil dagvöruverslun, pólsk gjafavöruverslun, veitingastaður með vínveitingaleyfi og Landsbanki Íslands rekur þar bankaafgreiðslu og póstafgreiðslu.
Í Stöðvarfirði er ýmislegt markvert og áhugavert að skoða. Í Jafnadal sem gengur inn af firðinum er klettaþyrping, sem nefnist Einbúi og steinbogi í hlíðum Álftafells, einn hinn fegursti sinnar tegundar á Íslandi. Í Stöðvará sem rennur til sjávar í fjarðarbotninum eru nokkrir fallegir fossar sem gaman er að skoða og fyrir áhugamenn um fjallgöngur er fjallahringurinn í Stöðvarfirði með áhugaverðari stöðum til slíkrar iðju. Ber þar fremstan að telja meðal jafningja Súlur, einkennisfjöll staðarins sem er mjög krefjandi gönguleið og aðeins á færi reyndra klifurkappa. Einnig má nefna Kumlafell, en þar getur að líta gat efst í fjallinu og sést í gegnum það til Fáskrúðsfjarðar. Beint fyrir ofan þorpið er fjallið Steðji. Við rætur þess eru Steðjatjarnir en ofar Stórkerald og Tyrkjaurð svo eitthvað sé nefnt. Út með firðinum norðanverðum, rétt við hin gömlu hreppamörk Stöðvarhrepps og Fáskrúðsfjarðarhrepps er einstakt náttúrufyrirbrigði sem nefnist Saxa. Í austlægum vindáttum dregur Saxa til sín þara, rekavið og annað lauslegt úr sjó, kurlar það í smátt og feykir hátt í loft upp.
Á Stöðvarfirði er hið landsfræga steinasafn Petru Sveinsdóttur, sem má ekki fara fram hjá þeim er leið sína leggja um Austurland. Gestir safnsins á ári hverju eru á annan tug þúsunda og margir koma þar á hverju ári til að skoða hið merka og fágæta safn.
Á Stöðvarfirði býðst ferðafólki ókeypis gisting á ágætu tjaldsvæði í austurenda kauptúnsins. Gamla sóknarkirkjan á Stöðvarfirði öðlaðist nýtt hlutverk fyrir fáum árum, þegar hún var afhelguð og breytt í gistihús. Bæði er hægt að fá svefnpokapláss og uppábúin rúm. Sami aðili og rekur gömlu kirkjuna býður einnig upp á ferðir á 6 tonna fiskibát, bæði útsýnissiglingar og sjóstangaveiði, allt eftir óskum ferðalanga.
Sundlaug Stöðvarfjarðar er opin alla daga yfir sumarmánuðina. Við sundlaugina er heitur pottur og þar er hægt að fá leigð sundföt. Sundlaugin stendur við Grunnskólann.
Upplýsingar um þjónustu í Stöðvarfirði
Sundlaug Sundlaug Stöðvarfjarðar, sími 475 0546
Veiði Kirkjubær, Fjarðarbraut 37a, sími: 892 3319 / 847 2966 og 846 0032
Gisting Kirkjubær, Fjarðarbraut 37a, sími: 892 3319/ 847 2966 og 846 0032
Tjaldstæði Tjaldstæði Fjarðarbraut, sími: 475 0515
Afþreying Steinasafn Petru, sími: 475 8834/ 866 3668 og 567 8306 og Gallerí Snærós, sími. 475 8931
Veitingar Brekkan, Fjarðarbraut 44, sími: 475 8939
Áhugaverðir staðir í Stöðvarfirði
Tilvalið er að fara í stuttar gönguferðir um svæðið en meðal annars má sjá Einbúann í Jafnadal og fossana í Stöðvará eða að kanna nánar fjallahringinn í kring um fjörðin en meðal annars má nefna Súlur og Kumlafell.
Einnig er hægt að finna sér rólegan stað í bænum, kaupa sér kaffibolla og eplaköku í Brekkunni og fylgjast með lífinu á Stöðvarfirði hafa sinn gang.
Nánari upplýsingar um áhugaverða staði er hægt að fá hjá heimamönnum.
Almenn þjónusta:
Brekkan, veitingar, matvara og gjafavörur, Fjarðarbraut 44, sími 475 8939
Landsbanki Íslands, Fjarðarbraut 54, sími: 475 8900
Olíufélagið Esso, sími: 475 8882 og 898 8807
Heilsugæslustöðin, Túngöta 2, sími: 475 8891.
Meiri upplýsingar fyrir ferðamenn