Spurt og svarað um vinnumálastofnun Austurlandi:



Atvinnuleysisbætur

 

Hvaða þjónustu er lýst?

Umsókn um atvinnuleysisbætur

 

Fyrir hverja er þjónustan og/eða hvaða skilyrði eru sett til þess að hægt sé að sækja að sækja um þjónustuna?

Þjónustan er fyrir alla sem ekki hafa vinnu og vilja skrá sig sem atvinnuleitanda og  þiggja atvinnuleysisbætur á meðan á leit að vinnu stendur.

 

Hvað kostar þjónustan?

 Hún er gjaldfrjáls

 

Hvar er þjónustan veitt, hvenær, símanúmer og netfang?

Bæjarskrifstofa og bókasöfn Fjarðabyggðar eru einungis þjónustuaðilar vegna umsókna um atvinnuleysisbætur. Þjónustan er veitt á bókasöfnunum í Fjarðabyggð á opnunartíma þeirra og á bæjarskrifstofu Fjarðabyggðar Hafnargötu 2, 730 Fjarðabyggð í síma 470 9000  netfang fjardabyggd@fjardabyggd.is. Einnig eru veittar upplýsingar á skrifstofu Vinnumálastofnunar Austurlands, Miðási 1, 700 Egilsstöðum, í síma 512 8280 – netfang austurland@vmst.is

 

Upplýsingar um umsóknafresti og móttöku umsókna.

Frumriti umsóknar skal skilað til Vinnumálastofnunar eða á bókasöfnin í Fjarðabyggð. Einnig er hægt að skrá sig atvinnulausan á vef  Vinnumálastofnunar www.vmst.is  Liðið geta 3-6 vikur frá því umsókn berst og þangað til að hún er tekin fyrir hjá Greiðslustofu Vinnumálastofnunar.

 

Hvaða gögnum þarf að skila?   

·         Vottorði frá vinnuveitendum um vinnutíma og hlutfall vinnu vegna síðustu 36 mánaða.

·         Tilkynningu um tekjur - sjá eyðublað

·         Skattkorti

 

Tekið er á móti umsókn á bókasöfnunum og á bæjarskrifstofunni og farið yfir ýmis atriði sem þurfa að vera rétt útfyllt svo sem

·         Að merkt sé við að greitt verði í  lífeyrissjóð

·         Upplýsingar um stéttarfélagsgjald og viðbótaframlag í séreignasjóð (val )

·         Upplýsingar um leyninúmer

·         Bankaupplýsingar.

 

Ferli umsóknar.  

:Tekið er við umsókn á bókasöfnunum í Fjarðabyggð og hjá Vinnumálastofnun á Egilsstöðum.

·         Mat á umsóknum fer fram hjá Vinnumálastofnun Austurlands

·         Ákvörðun um afgreiðslu umsóknar er tekin hjá Vinnumálastofnun Austurlands.

·         Umsækjandi fær skriflegt svar frá Vinnumálastofnun Austurlands um niðurstöðu.

·         Framkvæmd þjónustunnar er öll hjá Vinnumálastofnun

·         Umsækjandi þar að skrá sig milli 20.- 25. hvers mánaðar.

 

Hvernig eru ábendingar og kvartanir meðhöndlaðar?

Öllum ábendingum og kvörtunum er vísað til Vinnumálastofnunar www.vmst.is

 

Hver hefur yfirumsjón með þjónustunni?

Vinnumálastofnun Austurlands.  Bæjarskrifstofa og bókasöfnin eru eingöngu þjónustuaðilar.