Hvaða þjónustu er lýst?
Félagslegu húsnæði
Fyrir hverja er þjónustan og/eða hvaða skilyrði eru sett til þess að hægt sé að sækja að sækja um þjónustuna?
Félagslegar leiguíbúðir eru fyrir þá sem ekki eru færir um að sjá sér og sínum fyrir húsnæði sökum lágra tekna, þungrar framfærslubyrði eða annarra félagslegra aðstæðna.
Hvað kostar þjónustan?
Upplýsingar um leiguverð íbúða eru veittar á mannvirkjasviði í síma 470-9000.
Hvar er þjónustan veitt, hvenær, símanúmer og netfang?
Umsókn um félagslegt húsnæði er hægt að nálgast á bókasöfnum Fjarðabyggðar. Fyrirspurnir er einnig hægt að senda á felagsthjonusta@fjardabyggd.is
Upplýsingar um umsóknafresti og móttöku umsókna.
Tekið er við umsóknum á bókasöfnum Fjarðabyggðar en þær má senda í pósti; Félagsþjónustusvið Fjarðabyggðar, Hafnargötu 2, 730 Fjarðabyggð
Hvaða gögnum þarf að skila?
-Staðfestu afriti af þremur síðustu skattframtölum umsækjanda og maka eða sambúðaraðila.
-Launaseðllum umsækjanda, og þeirra sem með honum búa og hafa náð 20 ára aldri, vegna síðustu þriggja mánaða eða staðfesting á reiknuðu endurgjaldi vegna sjálfstæðrar starfsemi.
-Búsetuvottorði frá Hagstofu Íslands.
-Síðasta greiðsluseðli allra lána umsækjanda.
-Núverandi leigusamningi og umsögn fyrrverandi/núverandi leigusala um greiðslu húsaleigu og umgengni leigjanda um hið leigða.
Ferli umsóknar.
- Tekið er við umsóknum á bókasöfnum Fjarðabyggðar en einnig er hægt að senda þær í pósti.
- Allar umsóknir eru teknar fyrir af starfsfólki félagsþjónustu á fundum annan hvern miðvikudag. Við mat á umsóknum er tekið tillit til eigna og tekna umsækjenda.
- Eignamörk eru 3.625.000 krónur. Tekjumörk eru 2.599.633 krónur fyrir einhleyping, en 3.640.406 krónur fyrir hjón og sambúðarfólk. Auk þess kr. 435.191- fyrir hvert barn á framfæri innan 20 ára. Tekjumörk eru miðuð við meðaltal tekna sl. 3 ár. Heimilt er að taka tillit til skuldastöðu/greiðslubyrði umsækjanda.
- Ákvarðanir um félagslegt húsnæði eru teknar á fundum félagsþjónustu annan hvern miðvikudag.
- Umsækjendur fá skrifleg svör í kjölfar ákvarðana um umsóknir.
- Sé umsókn samþykkt fær umsækjandi svarbréf í pósti þar sem hann er beðinn um að hafa samband við starfsfólk félagsþjónustu til að ganga frá leigusamningi.
- Fái umsækjandi svar þess efnis að umsókn hafi verið móttekin, en sé á bið, ber að gæta þess að umsóknir þarf að endurnýja innan 6 mánaða frá umsóknardegi, til að umsókn haldist gild.
- Þegar umsókn hefur verið samþykkt fær umsækjandi bréf þess efnis og skal hann í kjölfarið hafa samband við starfsfólk félagsþjónustu.
Leigusamningar eru þá undirritaðir, en við undirritun greiðir leigjandi þriggja mánaða leigu sem tryggingu, auk mánaðarleigu fyrir fyrsta mánuð.
Hvernig eru ábendingar og kvartanir meðhöndlaðar?
Ábendingar og kvartanir skulu sendar á forstöðumann stjórnsýslu á netfangið fjardabyggd@fjardabyggd.is og í síma 470 9000.
Hver hefur yfirumsjón með þjónustunni?
Starfsfólk félagsþjónustu vinnur að húsnæðismálum og hefur félagsmálastjóri yfirumsjón með þjónustunni.