Félagsstarf eldri borgara á vegum Fjarðabyggðar er sem hér segir:
- ·Í Neskaupstað fer félagsstarfið fram í Breiðabliki mánudaga, þriðjudaga, fimmtudaga og annan hvern föstudag kl. 13:00-17:00. Föstudagarnir eru spiladagar. Nánari upplýsingar veitir félagsmálafulltrúi í síma 470 9017.
- Á Eskifirði fer starfið fram í Hulduhlíð á mánudögum, annan hvern þriðjudag og fimmtudögum kl.13:00 - 17:00. Einnig annan hvern þriðjudag í Melbæ kl. 13:00 -17:00.
- Á Reyðarfirði fer félagsstarfið fram að Melgerði 13, mánudaga og fimmtudaga kl.13:00 - 17:00.
- Á Fáskrúðsfirði hefur félagstarfið aðstöðu í húsi verkalýðsfélagsins og er á mánudögum og fimmtudögum kl. 14:00 - 17:00.
- Á Stöðvarfirði fer félagstarfið fram að Leynimel 7, á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 14:00-17:00.
Helga K. Eyjólfsdóttir hefur umsjón með félagsstarfinu - hún er í síma 470 9000, netfang helga.k.eyjolfsdottir@fjardabyggd.is.
Í Fjarðabyggð eru starfandi fjögur félög eldri borgara.
Félagið á Eskifirði hefur aðstöðu í Melbæ.
Félagið í Neskaupstað hefur aðstöðu í Sigfúsarhúsi. Sjá heimasíðu félagsins
Félagið á Reyðarfirði hefur aðstöðu í Melgerði 13 í Heiðarbæ.
Félag eldri borgara á Suðurfjörðum hefur aðstöðu í Glaðheimum sem er við hliðina á sundlauginni..
Ábendingar og fyrirspurnir