Spurt og svarað um menningu:



Lista- og fræðimannaíbúð í Jensenhúsi

 

Hvaða þjónustu er lýst? 

Jensenshús “dvalarstaður lista- og fræðimanna” er elsta uppistandandi íbúðarhús á Eskifirði reist árið 1837.  Húsið er nýuppgert í upprunalegri mynd á fallegum og rólegum stað í hjarta bæjarins.   
 

Fyrir hverja er þjónustan?

 

Þjónustan er ætluð lista- og fræðimönnum.

 

Hvar er þjónustan veitt, hvenær, símanúmer og netfang?

 

Jensenshús er að Tungustíg 3, 735 Eskifirði.  Húsið er til afnota allt árið um kring.  Sími: 470 9026 – 860 4726.  Netfang:  hildigunnur.jorundsdottir@fjardabyggd.is

 

Hvað kostar þjónustan?

 

Ekki er greidd leiga fyrir aðstöðu í húsinu.   Hins vegar er ætlast til að þeir sem þar dvelja komi á einhvern hátt á framfæri því sem þeir eru að vinna að í sinni list og / eða fræðigrein eða öðrum verkum sínum meðan á dvalartíma stendur.

 

Hver hefur umsjón með þjónustunni?

 

Ferða- og menningarfulltrúi Fjarðabyggðar:  Hildigunnur Jörundsdóttir, sími 470 9026 – 860 4726. Netfang:  hildigunnur.jorundsdottir@fjardabyggd.is

 Forstöðumaður Safnastofnunar Fjarðabyggðar:  Pétur Sörensson, sími 470 9063.  Netfang:  safnastofnun@fjardabyggd.is

Hátíðarhöld og viðburðir



Upplýsingar um stóru hátíðrnar í Fjarðabyggð.

Einstakir viðburði, tónleikar og sýningar eru á  viðburðadagatali á forsíðu vefsins

Skoðið einnig nýja síðu með upplýsinum um reglulega viðburði í vetur. 

Heimasíða Kirkju- og menningarmiðstöðvarinnar á Eskifirði  er www.tonleikahus.is

Styrkir til menningarstarfsemi



Hvaða þjónustu er lýst?   

Menningar-, íþrótta- og ferðamálanefnd Fjarðabyggðar veitir árlega styrki til menningarstarfsemi. Markmiðið er að styðja og efla menningarstarfsemi í Fjarðabyggð. 

 

Fyrir hverja er þjónustan og/eða hvaða skilyrði eru sett til þess að hægt sé að sækja að sækja um þjónustuna?

Listamenn, félagasamtök, stofnanir eða menningarviðburðir verða að tengjast Fjarðabyggð með fastri búsetu, viðburðurinn fari fram í Fjarðabyggð eða feli í sér kynningu á menningarstarfsemi í Fjarðabyggð. Ekki er styrkt til náms eða reksturs og viðhalds húsnæðis.  Nefndin áskilur sér rétt til að velja úr umsóknum hverju sinni.



Hvað kostar þjónustan?

Það kostar ekkert að sækja um menningarstyrk til nefndarinnar.

             

Hvar er þjónustan veitt, hvenær, símanúmer og netfang?

Auglýst er eftir umsóknum í janúar og er umsóknarfrestur alla jafna þrjár vikur. Nefndin úthlutar styrkjum fyrir lok febrúar.  Ferða- og menningarfulltrúi veitir nánari upplýsingar í síma 470 9000.



Upplýsingar um umsóknafresti og móttöku umsókna.

 

Auglýst er eftir umsóknum í janúar og er umsóknarfrestur alla jafna þrjár vikur. Menningar-, íþrótta- og ferðamálanefnd úthlutar styrkjum fyrir lok febrúar sama ár. 

Skilgreina þarf verkefnið í umsókn á sérstöku umsóknareyðublaði þar sem gerð grein fyrir verkefninu eða starfsemi, verk- og tímaáætlun og annarri fjármögnun  

Senda skal umsóknina til ferða- og menningarfulltrúa, Hafnargötu 2, 730 Fjarðabyggð.  Bókasöfnin í Fjarðabyggð taka einnig við umsóknunum.

 

Hvaða gögnum þarf að skila?  

Með umsóknareyðublaði fylgi kostnaðaráætlun, ósk um styrkupphæð og önnur gögn sem umsóknaraðili telur máli skipta. 

 

Ferli umsóknar  

Auglýst er eftir umsóknum í janúar og er umsóknarfrestur alla jafna þrjár vikur. Menningar-, íþrótta- og ferðamálanefnd úthlutar styrkjum fyrir lok febrúar sama ár. 

Hægt er að nálgast eyðublöð vegna umsóknar á bókasöfnum Fjarðabyggðar.

Umsóknir skulu sendar til ferða- og menningarfulltrúa, Bæjarskrifstofu Fjarðabyggðar,  Hafnargötu 2, 730 Fjarðabyggð.

Fjöldi styrkja og upphæðir ráðast af því fjármagni sem veitt er til nefndarinnar við gerð fjárhagsáætlunar hverju sinni. Fer úthlutun fram á fundi menningar-, íþrótta- og ferðamálanefndar.

Öllum umsóknum er svarað skriflega í febrúar.

Styrkir eru almennt greiddir út eftir að viðburður hefur farið fram en áskilinn er réttur til að krefjast endurgreiðslu styrkja komi ekki til verkefna sem sótt er um. Eftir að viðburði eða verkefni líkur ber umsækjanda að hafa samband við ferða- og menningarfulltrúa sem sér um að greiðsla fari fram.

Nánari upplýsingar veitir ferða- og menningarfulltrúi 470 9000  eða með tölvupósti hildigunnur.jorundsdottir@fjardabyggd.is



 Hvernig eru ábendingar og kvartanir meðhöndlaðar?



Ábendingar og kvartanir sendist til ferða- og menningarfulltrúa í síma 470-9000 eða með tölvupósti á hildigunnur.jorundsdottir@fjardabyggd.is eða til forstöðumanns stjórnsýslu í síma 470  9000 á fjardabyggd@fjardabyggd.is. Ábendingar eru meðhöndlaðar eftir eðli þeirra


Hver hefur yfirumsjón með þjónustunni?

Ferða- og menningarfulltrúi hefur umsjón með þjónustunni fyrir hönd menningar-, íþrótta- og ferðamálanefndar.



Bókasöfn

Hvaða þjónustu er verið að lýsa? 

Bókasöfnin í Fjarðabyggð eru fimm. Þau eru staðsett á Stöðvarfirði, Fáskrúðsfirði, Reyðarfirði, Eskifirði og Norðfirði.  Söfnin búa  yfir góðum safnkosti og boðið er upp á fjölbreytta þjónustu fyrir börn, unglinga og fullorðna, fyrirtæki og stofnanir. Helstu þjónustuþættir eru útlán gagna (s.s. á skáldsögum, fræðibókum, hljóðbókum, tímaritum, myndböndum og myndasögum) og upplýsingaþjónusta.  Á söfnunum eru einnig tölvur ætlaðar lánþegum, ýmist til að skoða margmiðlunardiska, sækja upplýsingar á Internetið eða til ritvinnslu. Aðstoð er veitt við heimildaleit og boðið er upp á lesaðstöðu. Bókasöfnin í Fjarðabyggð eru samsteypusöfn og hýsa því bæði almennings- og skólabókasafn viðkomandi þéttbýliskjarna.

Bókasöfnin eru einnig þjónustugátt fyrir bæjarskrifstofu Fjarðabyggðar. Á opnunartíma safnanna er tekið við umsóknum um þjónustu sveitarfélagsins. Hægt er að sækja sér eyðublöð og hægt að fylla þau út á tölvu til útprentunar. Bókasöfnin taka á móti umsóknum og koma þeim til skila á bæjarskrifstofuna á  Reyðarfirði. Jafnframt er aðgangur að tölvu og aðstoð og ráðgjöf um hvernig nálgast má upplýsingar um starfsemi sveitarfélagsins á heimasíðunni. Starfsmenn bókasafnanna veita aðstoð við að finna rétt eyðublöð og að benda á hvar hægt sé að leita sér frekari aðstoðar eða upplýsinga.

 

Fyrir hverja er þjónustan?

Þjónusta bókasafnanna er fyrir alla.

 

Hvað kostar þjónustan?

Árgjald:  1.180.- kr. fyrir 16 ára og eldri.  Nemar, elli- og og örorkulífeyrisþegar greiða ekki árgjald

Sektir  21.- kr. dagsekt á bók eða 105 kr. á viku.  Hámarkssekt á bók: 770.- kr.

Lágmarksgjald ef gögn glatast í vörslu lánþega er 2.945.- kr.

Hámarksútlán:                          4 bækur

Hámarksútlán nýrra bóka:          1 bók

Millisafnalán:     Lánþegi greiðir 1.180.- kr. vegna sendingarkostnaðar.

Almenningstölvur:  Gegn framvísun bókasafnsskírteinis fær lánþegi frían klukkutíma í tölvu.  Hver aukaklukkustund kostar 360.- kr.

Ljósritun á  A4  kostar 32 kr. stk,  A3 = 42 kr. stk.

Skip:    25 bækur í kassa 1.470.- kr.

Móttaka umsókna vegna þjónustu sveitarfélagsins er gjaldfrjáls.

Hvar er þjónustan veitt, hvenær, símanúmer og netfang?

Bókasöfnin eru staðsett á Neskaupstað, Eskifirði, Reyðarfirði, Fáskrúðsfirði og Stöðvarfirði.

 

Opnunartími bókasafnanna:

 

Mánudaga

Þriðjudaga

Miðvikudaga

Fimmtudaga

Föstudaga

Norðfjörður

14 - 19

14 - 17

14 - 17

14 - 17

 

Eskifjörður

14 - 17

14 - 17

14 - 19

14 - 17

 

Reyðarfjörður

14 - 17

14 - 17

14 - 17

14 - 19

 

Fáskrúðsfjörður

14 - 19

 

14 – 17

 

14 - 17

Stöðvarfjörður

 

15 - 19

 

15 - 17

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 
Bókasafnið í Neskaupstað er til húsa í Nesskóla, jarðhæð. Skólavegi 9, 740 Neskaupstað. Forstöðumaður er Óskar Þór Þráinsson. Sími: 477-1521. GSM: 659-8000. Netfang: boknes@fjardabyggd.is

Bókasafnið á Eskifirði er til húsa í Grunnskóla Eskifjarðar. Lambeyrarbraut 16, 735 Eskifirði.  Forstöðumaður er Guðný Einarsdóttir. Sími: 476-1586. Netfang: bokesk@fjardabyggd.is

Bókasafnið á Reyðarfirði er til húsa í Grunnskóla Reyðarfjarðar, jarðhæð. Heiðarvegi 14a, 730 Reyðarfirði. Forstöðumaður er Guðrún Rúnarsdóttir. Sími: 474-1366. GSM: 865-6412. Netfang: bokrey@fjardabyggd.is

Bókasafnið á Fáskrúðsfirði er til húsa í Grunnskóla Fáskrúðsfjaðrar að Hlíðargötu 56 750 Fáskrúðsfirði. Forstöðumaður er Linda Hugdís Guðmundsdóttir. Sími: 475-9016. Netfang: bokfas@fjardabyggd.is

Bókasafn Stöðvarhrepps er til húsa í Grunnskólanum á Stöðvarfirði, Skólabraut 20, 755 Stöðvarfirði.  Forstöðumaður er Linda Hugdís Guðmundsdóttir. Sími: 475-9017. Netfang: bokstod@fjardabyggd.is

 

Hvaða skilyrði eru sett til að hægt sé að sækja um skírteini?

Við kaup á skírteini þarf að sýna persónuskilríki. Börn og unglingar yngri en 18 ára þurfa skriflega ábyrgð foreldris eða forráðamanns. Ábyrgðareyðublöð liggja frammi í afgreiðslu safnanna.

 

Hvernig eru ábendingar og eða kvartanir meðhöndlaðar?

Viðkomandi forstöðumaður safns tekur við ábendingum/kvörtunum á staðnum, í gegnum síma eða tölvupóst.

Einnig er hægt að hafa samband við forstöðumann safnastofnunar, Pétur Sörensson: sími: 470-9063. Fax: 470 9001, netfang: safnastofnun@fjardabyggd.is.

 

Hver hefur umsjón með þjónustunni?

Forstöðumenn viðkomandi safna í samvinnu við Safnastofnun.

 

Tengiliður vegna þjónustu

Forstöðumaður Safnastofnunar Pétur Sörensson sími 470 9063 og netfang safnastofnun@fjardabyggd.is

Sjóminjasafn Austurlands

Hvaða þjónustu er lýst?

Sjóminjasafn Austurlands á Eskifirði var opnað 1983 í gömlu verslunarhúsnæði sem ber nafnið Gamla-búð.  Sýning safnsins er á tveimur hæðum og einnig eru nokkrir gamlir munir utandyra sem tilheyra sjósókn og vinnslu sjávarafla.  Einnig er hluti safnsins gamalt sjóhús “Randulffssjóhús” sem rekið er sem sýningar- og þjónustuhús fyrir gesti í samstarfi við ferðaþjónustuaðila á Eskifirði.

 

Fyrir hverja er þjónustan?

 

Þjónustan er ætluð öllum.

 

Hvar er þjónustan veitt, hvenær, símanúmer og netfang?

 

Sjóminjasafn Austurlands er að Strandgötu 39b, 735 Eskifirði.  Safnið er opið daglega frá  kl. 13:00 – 17:00 frá 1. júní til 31. ágúst.  Utan þess tíma  er tekið á móti hópum eftir samkomulagi við safnvörð.  Sími: 476 1605 - 470 90 63 – 860 4726.Netfang:  safnastofnun@fjardabyggd.is

 

Hvað kostar þjónustan?

 

Aðgangseyrir samkvæmt gjaldskrá.

 

Hver hefur umsjón með þjónustunni?

Forstöðumaður Safnastofnunar Fjarðabyggðar er Pétur Sörensson, sími 470 9063.  Netfang:  safnastofnun@fjardabyggd.is

 

Tengiliður vegna þjónustu

Ferða- og menningarfulltrúi Fjarðabyggðar:  Hildigunnur Jörundsdóttir, sími 860 4726.  Netfang:  hildigunnur.jorundsdottir@fjardabyggd.is  Afgreiðsla  Fjarðabyggðar í síma 470 9000

 

Safnastofnun

 

Þessi söfn heyra undir Safnastofnun Fjarðabyggðar:

  • Íslenska stríðsárasafnið á Reyðarfirði.
  • Sjóminjasafn Austurlands á Eskifirði.
  • Myndasafn Eskifjarðar.
  • Náttúrugripasafnið í Neskaupstað.
  • Sjóminja- og smiðjumunasafn Jósafats Hinrikssonar í Neskaupstað.
  • Myndlistarsafn Tryggva Ólafssonar í Neskaupstað.
  • Mynda- og skjalasafnið í Neskaupstað.
  • Bókasafnið í Neskaupstað.
  • Bókasafnið á Eskifirði.
  • Bókasafnið á Reyðarfirði.
  • Bókasafnið á Fáskrúðsfirði.
  • Bókasafnið á Stöðvarfirði.

Fyrir hverja er þjónustan?

 

Þjónustan er ætluð öllum.

 

Hvar er þjónustan veitt, hvenær, símanúmer og netfang?

Safnastofnun Fjarðabyggðar er til húsa í bæjarskrifstofu Fjarðabyggðar í Molanum, Hafnargötu 2, 730 Reyðarfirði. Sími 470 9063.  Netfang: safnastofnun@fjardabyggd.is

 

Hvað kostar þjónustan?

 

Sjá gjaldskrá

 

Hver hefur umsjón með þjónustunni?

 

Forstöðumaður Safnastofnunar Fjarðabyggðar:  Pétur Sörensson, sími 470 9063.

Netfang:  safnastofnun@fjardabyggd.is

 

Yfirumsjón með þjónustunni

 

Tómstundastjóri Fjarðabyggðar:  Þóroddur Helgason, sími 470 9000.

Netfang:  thoroddur.helgason@fjardabyggd.is

Safnahúsið í Neskaupstað

Hvaða þjónustu lýst?

Safnahúsið í Neskaupstað er fjölþætt menningar- og sýningarhúsnæði um 900 m² að stærð á þremur hæðum.  Í húsinu eru  þrjú söfn til húsa.

  • Náttúrugripasafnið í Neskaupstað.
  • Sjóminja- og smiðjumunasafn Jósafats Hinrikssonar í Neskaupstað.
  • Myndlistarsafn Tryggva Ólafssonar í Neskaupstað.

Fyrir hverja er þjónustan?

 Þjónustan er ætluð íbúum, skólum og gestum í Fjarðabyggð.

 

Hvar er þjónustan veitt, hvenær, símanúmer og netfang?

 

Safnahúsið er  á  Egilsbraut 2, 740 Neskaupstað.  Söfnin eru opin daglega milli 13:00 – 17:00 frá 1. júní til 31. ágúst. Utan þess tíma eftir samkomulagi við safnvörð.  Sími: 477 1454 - 470 90 63 - 860 4726.   Netfang:  safnastofnun@fjardabyggd.is

 

Hvað kostar þjónustan?

 

Aðgangseyrir er samkvæmt gjaldskrá.

 

Hver hefur umsjón með þjónustunni?

Forstöðumaður Safnastofnunar Fjarðabyggðar Pétur Sörensson, sími 470 9063. Netfang:  safnastofnun@fjardabyggd.is

 

Tengiliður vegna þjónustu.

Ferða- og menningarfulltrúi Fjarðabyggðar:  Hildigunnur Jörundsdóttir, sími 860 4726. Netfang:  hildigunnur.jorundsdottir@fjardabyggd.is .   Afgreiðsla Fjarðabyggðar, sími 470 9000.

 

Kirkju- og menningarmiðstöðin

Hvaða þjónustu er verið að lýsa? Kirkju- og menningarmiðstöðin Fjarðabyggð

Kirkju- og menningarmiðstöðin gegnir hlutverki miðstöðvar tónlistar á Austurlandi sem ein af fjórum aðal menningarmiðstöðvum á Austurlandi sem heyra undir Menningarráð Austurlands.

Kirkju- og menningarmiðstöðin er sérlega hentug fyrir tónleika af flestum toga. Hljómburður er þar einstakur og hönnun byggingar miðaði öll að því að skapa sjón- og hljóðræna nánd milli flytjenda og njótenda. Húsið er mjög sveigjanlegt og aðbúnaður allur í sérflokki og fer vel um fólk.

Í Kirkju- og menningarmiðstöðinni er boðið upp á ýmiskonar viðburði allt árið.  Þá er húsið einnig mjög hentugt til sýningahalds, hvers kyns ráðstefna og funda

Fyrir hverja er þjónustan?

 

Þjónustan er ætluð öllum sem vilja njóta listviðburða af ýmsu tagi en einnig þeim sem vilja standa fyrir viðburðum eða nýta húsnæðið undir fundi eða ráðstefnur.

 

Hvar er þjónustan veitt, hvenær, símanúmer og netfang?

Hvaða þjónustu er lýst

Kirkju- og menningarmiðstöðin Fjarðabyggð er staðsett að Dalbraut 2, 735 Eskifirði. Sími 476 1742, Heimasíða: www.tonleikahus.is   Netfang: kari@karlmenn.is   Húsnæðið er í notkun allt árið en er aðeins opið almenningi þegar viðburðir eru í gangi.

Hvað kostar þjónustan?

Á heimasíðu Kirkju- og menningarmiðstöðvarinnar er gerð grein fyrir öllum viðburðum sem á dagskrá eru ásamt upplýsingum um aðgangseyri.  Upplýsingar um verðlista fyrir tónleikahald og leigu á sölum fást hjá forstöðumanni kirkju- og menningarmiðstöðvarinnar í síma 476 1742 eða í netfangi kari@karlmenn.is

 

Hver hefur umsjón með þjónustunni?

 

Forstöðumaður kirkju- og menningarmiðstöðvarinnar Kári Þormar í síma 476 1742 eða í netfangi kari@karlmenn.is

 

 

Tengiliður vegna þjónustu

 

Ferða- og menningarfulltrúi Fjarðabyggðar:  Hildigunnur Jörundsdóttir, sími 860 4726.  Netfang:  hildigunnur.jorundsdottir@fjardabyggd.is

Íslenska stríðsárasafnið

 

Hvaða þjónustu er verið að lýsa? 

Sýning Íslenska stríðsárasafnsins á Reyðarfirði samanstendur af munum og ýmsum fróðleik frá heimsstyrjöldinni síðari en safnið var sett á laggirnar árið 1995.  Safnið er við rætur braggaþyrpingar á svæði sem kallaður er Spítalakampur en þar reistu Bandaríkjamenn fullbúinn herspítala í heimsstyrjöldinni síðari. 

Fyrir hverja er þjónustan?

 

Þjónustan er ætluð öllum.

 

Hvar er þjónustan veitt, hvenær, símanúmer og netfang?

 

Íslenska stríðsárasafnið er við leifar braggaþyrpingar á Reyðarfirði, Spítalakampinn við Hæðargerði, efst í bænum.  Safnið er opið daglega milli 13:00 – 17:00 frá 1. júní til 31. ágúst.  Utan þess tíma eftir samkomulagi við safnvörð.  Sími: 476 1605 - 470 90 63 – 860 4726.  Netfang:  safnastofnun@fjardabyggd.is

 

Hvað kostar þjónustan?

Aðgangseyrir er samkvæmt gjaldskrá.

 

Hver hefur umsjón með þjónustunni?

 Forstöðumaður Safnastofnunar Fjarðabyggðar:  Pétur Sörensson, sími 470 9063. Netfang:  safnastofnun@fjardabyggd.is

 

Tengiliður vegna þjónustu

 

Forstöðumaður Safnastofnunar Fjarðabyggðar:  Pétur Sörensson, sími 470 9063.  Netfang:  safnastofnun@fjardabyggd.is

 Ferða- og menningarfulltrúi Fjarðabyggðar:  Hildigunnur Jörundsdóttir, sími 860 4726. Netfang:  hildigunnur.jorundsdottir@fjardabyggd.is

 Afgreiðsla Fjarðabyggðar í síma 470 9000. 

 

Bæjarskrifstofa og þjónustugáttir í bókasöfnum

Bæjarskrifstofa Fjarðabyggðar er á 2. hæð  Molanum Hafnargötu 2,  730 Fjarðabyggð.  Sími skiptiborðs er 470 9000 og faxnúmer er 470 9001.  Netfang er fjardabyggd@fjardabyggd.is     Skiptiborðið er opið  alla virka daga frá kl. 10:00 til 16:00.  Þar er m.a. hægt að bóka viðtöl og fundi með starfsmönnum bæjarins

 

Þjónustugáttir fyrir íbúa eru á bókasöfnum Fjarðabyggðar á Norðfirði, Eskifirði, Reyðarfirði, Fáskrúðsfirði og Stöðvarfirði.

Á opnunartíma safnanna er tekið við umsóknum um þjónustu sveitarfélagsins.  Bókasöfnin taka á móti umsóknum og koma þeim til skila á bæjarskrifstofuna á  Reyðarfirði. Jafnframt er aðgangur að tölvu og aðstoð og ráðgjöf um hvernig nálgast má upplýsingar um starfsemi sveitarfélagsins á heimasíðunni. Starfsmenn bókasafnanna veita aðstoð við að finna rétt eyðublöð og að benda á hvar hægt sé að leita sér frekari aðstoðar eða upplýsinga.

Í Molanum eru: 

Félagsþjónustusvið
 - Almenn félagsþjónusta, húsaleigubætur, barnavernd, liðveisla, félagsleg heimaþjónusta, félagsstarf aldraðra og öryrkja, dagforeldrar.

Fjármálasvið – Bókhald, innheimta, gjaldkeri, fasteignamat, fjárhagsáætlunargerð, starfsáætlunargerð

Fjarðabyggðarhafnir – Málefni hafnanna í Fjarðabyggð. Dagleg stjórn hafnanna er hjá hafnarvörðum.

Fræðslusvið – Málefni grunnskóla, leikskóla og tónlistarskóla

Mannvirkjasvið- Veitur, snjómokstur, framkvæmdir, umsjón með fasteignum og viðhald þeirra, umferðarmál.

Mannauðs- og upplýsingatæknisvið – Launamál, starfsmannamál og upplýsingakerfi bæjarins.

Safnastofnun Fjarðabyggðar – Safnamál.

Stjórnsýslusvið – Almenn þjónusta bæjarskrifstofanna þ.m.t. símaþjónusta og þjónustugáttir,, skjalamál.

Tómstundasvið – Æskulýðs- og íþróttamál, ferðamál, menningarmál.

Umhverfissvið  – Skipulagsmál, byggingarmál, dýraeftirlit, upplýsingar um fasteignir, lóðaskráning, hreinlætismál, sorphirða og sorpeyðing, almenningssamgöngur.