Spurt og svarað um bókasöfn:



Bókasöfn

Hvaða þjónustu er verið að lýsa? 

Bókasöfnin í Fjarðabyggð eru fimm. Þau eru staðsett á Stöðvarfirði, Fáskrúðsfirði, Reyðarfirði, Eskifirði og Norðfirði.  Söfnin búa  yfir góðum safnkosti og boðið er upp á fjölbreytta þjónustu fyrir börn, unglinga og fullorðna, fyrirtæki og stofnanir. Helstu þjónustuþættir eru útlán gagna (s.s. á skáldsögum, fræðibókum, hljóðbókum, tímaritum, myndböndum og myndasögum) og upplýsingaþjónusta.  Á söfnunum eru einnig tölvur ætlaðar lánþegum, ýmist til að skoða margmiðlunardiska, sækja upplýsingar á Internetið eða til ritvinnslu. Aðstoð er veitt við heimildaleit og boðið er upp á lesaðstöðu. Bókasöfnin í Fjarðabyggð eru samsteypusöfn og hýsa því bæði almennings- og skólabókasafn viðkomandi þéttbýliskjarna.

Bókasöfnin eru einnig þjónustugátt fyrir bæjarskrifstofu Fjarðabyggðar. Á opnunartíma safnanna er tekið við umsóknum um þjónustu sveitarfélagsins. Hægt er að sækja sér eyðublöð og hægt að fylla þau út á tölvu til útprentunar. Bókasöfnin taka á móti umsóknum og koma þeim til skila á bæjarskrifstofuna á  Reyðarfirði. Jafnframt er aðgangur að tölvu og aðstoð og ráðgjöf um hvernig nálgast má upplýsingar um starfsemi sveitarfélagsins á heimasíðunni. Starfsmenn bókasafnanna veita aðstoð við að finna rétt eyðublöð og að benda á hvar hægt sé að leita sér frekari aðstoðar eða upplýsinga.

 

Fyrir hverja er þjónustan?

Þjónusta bókasafnanna er fyrir alla.

 

Hvað kostar þjónustan?

Árgjald:  1.180.- kr. fyrir 16 ára og eldri.  Nemar, elli- og og örorkulífeyrisþegar greiða ekki árgjald

Sektir  21.- kr. dagsekt á bók eða 105 kr. á viku.  Hámarkssekt á bók: 770.- kr.

Lágmarksgjald ef gögn glatast í vörslu lánþega er 2.945.- kr.

Hámarksútlán:                          4 bækur

Hámarksútlán nýrra bóka:          1 bók

Millisafnalán:     Lánþegi greiðir 1.180.- kr. vegna sendingarkostnaðar.

Almenningstölvur:  Gegn framvísun bókasafnsskírteinis fær lánþegi frían klukkutíma í tölvu.  Hver aukaklukkustund kostar 360.- kr.

Ljósritun á  A4  kostar 32 kr. stk,  A3 = 42 kr. stk.

Skip:    25 bækur í kassa 1.470.- kr.

Móttaka umsókna vegna þjónustu sveitarfélagsins er gjaldfrjáls.

Hvar er þjónustan veitt, hvenær, símanúmer og netfang?

Bókasöfnin eru staðsett á Neskaupstað, Eskifirði, Reyðarfirði, Fáskrúðsfirði og Stöðvarfirði.

 

Opnunartími bókasafnanna:

 

Mánudaga

Þriðjudaga

Miðvikudaga

Fimmtudaga

Föstudaga

Norðfjörður

14 - 19

14 - 17

14 - 17

14 - 17

 

Eskifjörður

14 - 17

14 - 17

14 - 19

14 - 17

 

Reyðarfjörður

14 - 17

14 - 17

14 - 17

14 - 19

 

Fáskrúðsfjörður

14 - 19

 

14 – 17

 

14 - 17

Stöðvarfjörður

 

15 - 19

 

15 - 17

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 
Bókasafnið í Neskaupstað er til húsa í Nesskóla, jarðhæð. Skólavegi 9, 740 Neskaupstað. Forstöðumaður er Óskar Þór Þráinsson. Sími: 477-1521. GSM: 659-8000. Netfang: boknes@fjardabyggd.is

Bókasafnið á Eskifirði er til húsa í Grunnskóla Eskifjarðar. Lambeyrarbraut 16, 735 Eskifirði.  Forstöðumaður er Guðný Einarsdóttir. Sími: 476-1586. Netfang: bokesk@fjardabyggd.is

Bókasafnið á Reyðarfirði er til húsa í Grunnskóla Reyðarfjarðar, jarðhæð. Heiðarvegi 14a, 730 Reyðarfirði. Forstöðumaður er Guðrún Rúnarsdóttir. Sími: 474-1366. GSM: 865-6412. Netfang: bokrey@fjardabyggd.is

Bókasafnið á Fáskrúðsfirði er til húsa í Grunnskóla Fáskrúðsfjaðrar að Hlíðargötu 56 750 Fáskrúðsfirði. Forstöðumaður er Linda Hugdís Guðmundsdóttir. Sími: 475-9016. Netfang: bokfas@fjardabyggd.is

Bókasafn Stöðvarhrepps er til húsa í Grunnskólanum á Stöðvarfirði, Skólabraut 20, 755 Stöðvarfirði.  Forstöðumaður er Linda Hugdís Guðmundsdóttir. Sími: 475-9017. Netfang: bokstod@fjardabyggd.is

 

Hvaða skilyrði eru sett til að hægt sé að sækja um skírteini?

Við kaup á skírteini þarf að sýna persónuskilríki. Börn og unglingar yngri en 18 ára þurfa skriflega ábyrgð foreldris eða forráðamanns. Ábyrgðareyðublöð liggja frammi í afgreiðslu safnanna.

 

Hvernig eru ábendingar og eða kvartanir meðhöndlaðar?

Viðkomandi forstöðumaður safns tekur við ábendingum/kvörtunum á staðnum, í gegnum síma eða tölvupóst.

Einnig er hægt að hafa samband við forstöðumann safnastofnunar, Pétur Sörensson: sími: 470-9063. Fax: 470 9001, netfang: safnastofnun@fjardabyggd.is.

 

Hver hefur umsjón með þjónustunni?

Forstöðumenn viðkomandi safna í samvinnu við Safnastofnun.

 

Tengiliður vegna þjónustu

Forstöðumaður Safnastofnunar Pétur Sörensson sími 470 9063 og netfang safnastofnun@fjardabyggd.is

Bæjarskrifstofa og þjónustugáttir í bókasöfnum

Bæjarskrifstofa Fjarðabyggðar er á 2. hæð  Molanum Hafnargötu 2,  730 Fjarðabyggð.  Sími skiptiborðs er 470 9000 og faxnúmer er 470 9001.  Netfang er fjardabyggd@fjardabyggd.is     Skiptiborðið er opið  alla virka daga frá kl. 10:00 til 16:00.  Þar er m.a. hægt að bóka viðtöl og fundi með starfsmönnum bæjarins

 

Þjónustugáttir fyrir íbúa eru á bókasöfnum Fjarðabyggðar á Norðfirði, Eskifirði, Reyðarfirði, Fáskrúðsfirði og Stöðvarfirði.

Á opnunartíma safnanna er tekið við umsóknum um þjónustu sveitarfélagsins.  Bókasöfnin taka á móti umsóknum og koma þeim til skila á bæjarskrifstofuna á  Reyðarfirði. Jafnframt er aðgangur að tölvu og aðstoð og ráðgjöf um hvernig nálgast má upplýsingar um starfsemi sveitarfélagsins á heimasíðunni. Starfsmenn bókasafnanna veita aðstoð við að finna rétt eyðublöð og að benda á hvar hægt sé að leita sér frekari aðstoðar eða upplýsinga.

Í Molanum eru: 

Félagsþjónustusvið
 - Almenn félagsþjónusta, húsaleigubætur, barnavernd, liðveisla, félagsleg heimaþjónusta, félagsstarf aldraðra og öryrkja, dagforeldrar.

Fjármálasvið – Bókhald, innheimta, gjaldkeri, fasteignamat, fjárhagsáætlunargerð, starfsáætlunargerð

Fjarðabyggðarhafnir – Málefni hafnanna í Fjarðabyggð. Dagleg stjórn hafnanna er hjá hafnarvörðum.

Fræðslusvið – Málefni grunnskóla, leikskóla og tónlistarskóla

Mannvirkjasvið- Veitur, snjómokstur, framkvæmdir, umsjón með fasteignum og viðhald þeirra, umferðarmál.

Mannauðs- og upplýsingatæknisvið – Launamál, starfsmannamál og upplýsingakerfi bæjarins.

Safnastofnun Fjarðabyggðar – Safnamál.

Stjórnsýslusvið – Almenn þjónusta bæjarskrifstofanna þ.m.t. símaþjónusta og þjónustugáttir,, skjalamál.

Tómstundasvið – Æskulýðs- og íþróttamál, ferðamál, menningarmál.

Umhverfissvið  – Skipulagsmál, byggingarmál, dýraeftirlit, upplýsingar um fasteignir, lóðaskráning, hreinlætismál, sorphirða og sorpeyðing, almenningssamgöngur.