Spurt og svarað um Stríðsárasafnið:



Íslenska stríðsárasafnið

 

Hvaða þjónustu er verið að lýsa? 

Sýning Íslenska stríðsárasafnsins á Reyðarfirði samanstendur af munum og ýmsum fróðleik frá heimsstyrjöldinni síðari en safnið var sett á laggirnar árið 1995.  Safnið er við rætur braggaþyrpingar á svæði sem kallaður er Spítalakampur en þar reistu Bandaríkjamenn fullbúinn herspítala í heimsstyrjöldinni síðari. 

Fyrir hverja er þjónustan?

 

Þjónustan er ætluð öllum.

 

Hvar er þjónustan veitt, hvenær, símanúmer og netfang?

 

Íslenska stríðsárasafnið er við leifar braggaþyrpingar á Reyðarfirði, Spítalakampinn við Hæðargerði, efst í bænum.  Safnið er opið daglega milli 13:00 – 17:00 frá 1. júní til 31. ágúst.  Utan þess tíma eftir samkomulagi við safnvörð.  Sími: 476 1605 - 470 90 63 – 860 4726.  Netfang:  safnastofnun@fjardabyggd.is

 

Hvað kostar þjónustan?

Aðgangseyrir er samkvæmt gjaldskrá.

 

Hver hefur umsjón með þjónustunni?

 Forstöðumaður Safnastofnunar Fjarðabyggðar:  Pétur Sörensson, sími 470 9063. Netfang:  safnastofnun@fjardabyggd.is

 

Tengiliður vegna þjónustu

 

Forstöðumaður Safnastofnunar Fjarðabyggðar:  Pétur Sörensson, sími 470 9063.  Netfang:  safnastofnun@fjardabyggd.is

 Ferða- og menningarfulltrúi Fjarðabyggðar:  Hildigunnur Jörundsdóttir, sími 860 4726. Netfang:  hildigunnur.jorundsdottir@fjardabyggd.is

 Afgreiðsla Fjarðabyggðar í síma 470 9000.