Hvaða þjónustu er lýst
Félagsmiðstöðvar mæta þörf 13 til 16 ára unglinga fyrir uppbyggilegt og gefandi félagsstarf í frítíma þeirra. Áhersla er lögð á fjölbreytni í starfinu og að ná til þeirra unglinga sem þarfnast félagslegs stuðnings. Í öllum félagsmiðstöðvum starfa unglingaráð sem móta viðfangsefni líðandi stundar í félagsmiðstöðinni og eru málsvarar unglinganna. Forvarnir meðal unglinga, hvað varðar reykingar, vímuefni og einelti er stór þáttur í starfinu.
Fyrir hverja er þjónustan og/eða hvaða skilyrði eru sett til þess að hægt sé að sækja um þjónustuna?
Þjónustan er fyrir 13-16 ára unglinga
Hvað kostar þjónustan?
Það kostar ekkert að koma í félagsmiðstöðina á opnunartíma. Kostnaði á böll, tónleika og aðra viðburði er haldið í lágmarki. Ferðalög eru yfirleitt greidd með fjáröflun unglinganna.
Hvar er þjónustan veitt, hvenær, símanúmer og netfang?
Félagsmiðstöðvarnar í Fjarðabyggð eru fyrir unglinga í 8. - 10. bekk og þær eru opnar þrisvar í viku að jafnaði á starfstíma skólanna frá ágúst til maí. Opnunartímar eru frá kl. 20:00-22:00 tvo daga í viku og frá 20:00-23:00 á föstudögum. Á Fáskrúðsfirði og Stöðvarfirði er opið annað hvert föstudagskvöld. Jafnframt er opið fyrir nemendur 5.-7. bekkjar aðra hverja viku einn dag í viku frá kl. 17:00-19:00. Vegna hefða eru aldursmið aðeins mismunandi á milli þéttbýlisstaða.
Félagsmiðstöðin Atóm, Strandgötu 49, Norðfirði 740 Fjarðabyggð,Sími: 477 1819 og 662 5181 , atom@fjardabyggd.is
Félagsmiðstöðin Knellan, Strandgötu 47, Eskifirði, 735 Fjarðabyggð, sími 476 1528 og 845 7273, knellan@fjardabyggd.is
Félagsmiðstöðin Zveskjan, Austurvegi 1, Reyðarfirði, 730 Fjarðabyggð, Sími 474 1402 og 690 3359. zveskjan@fjardabyggd.is
Félagsmiðstöðin Hellirinn, Fáskrúðsfirði, í félagsheimilnu Skrúð sími 475 9018. hellirinn.stodin@fjardabyggd.is
Félagsmiðstöðin Stöðin, Stöðvarfirði er í gamla félagsheimilnu sími 475 9018. hellirinn.stodin@fjardabyggd.is
Hvernig eru ábendingar og kvartanir meðhöndlaðar?
Þeim skal beint til forstöðumanns viðkomandi félagsmiðstöðvar og ef við á til íþrótta- og æskulýðsfulltrúa í síma 470 9000 eða á netfangið fjardabyggd@fjardabyggd.is
Hver hefur yfirumsjón með þjónustunni?
Jóhann Tryggvason, íþrótta- og æskulýðsfulltrúi, johann.tryggvason@fjardabyggd.is í síma 470 9000.