Spurt og svarað um grunnskóla:


Umsókn um skólavist í grunnskóla

Hvaða þjónustu er verið að lýsa?

Innritun í grunnskóla Fjarðabyggðar


 

Fyrir hverja er þjónustan og/eða hvaða skilyrði eru sett til þess að hægt sé að sækja um þjónustuna?

Verðandi grunnskólanemendur í Fjarðabyggð og forráðamenn þeirra.

 

 

Hvar er þjónustan veitt, hvenær, símanúmer og netfang?

Allt árið í grunnskólum Fjarðabyggðar. 

Grunnskólinn á Stöðvarfirði, 475 9030, Skólabraut 20, 755 Fjarðabyggð, sto@skolar.fjardabyggd.is

Grunnskóli Fáskrúðsfjarðar, 475 9020, Hlíðargötu 56, 750 Fjarðabyggð,fas@skolar.fjardabyggd.is    

Grunnskóli Reyðarfjarðar, 474 1247, Heiðarvegi 14a, 730 Fjarðabyggð,  rey@skolar.fjardabyggd.is

Grunnskóli Eskifjarðar, 476 1355, Lambeyrarbraut 14, 735 Fjarðabyggð,  esk@skolar.fjardabyggd.is

Nesskóli Norðfirði, 477 1124, Skólavegi, 740 Fjarðabyggð, nes@skolar.fjardabyggd.is 

Nemendur á Mjóafirði eru skráðir í Nesskóla en útibú frá honum er á Mjóafirði.

Kortasjá Fjarðabyggðar

 

 

Hvaða skilyrði eru sett til að sækja um?

 Að barnið sé á grunnskólaaldri 6 -15 ára.

 

Upplýsingar um umsóknafresti og móttöku umsókna.

Upphaf skólastarfs grunnskólanna í Fjarðabyggð er að jafnaði auglýst á vef Fjarðabyggðar og í héraðsfréttablöðum í ágústmánuði og sérstakt bréf er sent forráðamönnum 6 ára barna. Að öðru leyti er innritun opin allt árið um kring.

 

 

Hvaða gögnum þarf að skila?  

Fylla þarf nákvæmlega út umsóknareyðublað um skólavist með helstu upplýsingum um nemandann.  Umsóknareyðublaðið er tiltækt á vef hlutaðeigandi skóla.

 

Ferli umsóknar  

Upplýsinga er leitað hjá hlutaðeigandi skóla og umsókn er skilað þangað. Í framhaldi af því er nemanda og foreldrum / forráðamönnum boðið í viðtal í skólann.

 

Hvernig eru ábendingar og kvartanir meðhöndlaðar?

Ábendingum er komið til skólastjóra hlutaðeigandi grunnskóla eða til fræðslustjóra Fjarðabyggðar í síma 470 9000 eða á netfangið  fjardabyggd@fjardabyggd.is