Hvaða þjónustu er verið að lýsa?
Leikskólar eru þjónustu- og menntastofnun fyrir öll börn á leikskólaaldri. Í Fjarðabyggð eru leikskólar á Norðfirði, Eskifirði, Reyðarfirði, Fáskrúðsfirði og Stöðvarfirði og á Mjóafirði er útibú frá leikskólanum á Reyðarfirði.
Fyrir hverja er þjónustan og/eða hvaða skilyrði eru sett til þess að hægt sé að sækja um þjónustuna?
Leikskólar eru fyrir börn á leikskólaaldri, 1 - 6 ára, sem eiga lögheimili í Fjarðabyggð. Börn geta byrjað í leikskóla 12 mánaða gömul ef leikskólapláss er til staðar. Sækja skal um leikskólavist til leikskólastjóra í hverjum byggðakjarna, eða rafrænt á heimasíðu hlutaðeigandi leikskóla. Reyðarfjörður tekur við Mjóafjarðarumsóknum. Sækja má um vistun þegar barn hefur náð 6 mánaða aldri.
Sjá gjaldskrá.
Hvar er þjónustan veitt, hvenær, símanúmer og netfang?
Almennur opnunartími leikskólanna er frá kl. 7:30 - 16:45.
· Leikskólinn Sólvellir sími 477 1485, Blómsturvöllum 26-32, 740 Norðfirði, netfang solvellir@fjardabyggd.is,
· Leikskólinn Dalborg sími 476 1341, Dalbraut 6, 735 Eskifirði, netfang dalborg@fjardabyggd.is
· Leikskólinn Lyngholt 474 1257 Heiðarvegi 5, 730 Reyðarfirði netfang lyngholt@fjardabyggd.is
· Leikskólinn Kæribær, sími 475 9055, Hlíðargötu 56, 750 Fáskrúðsfirði, netfang kaeribaer@fjardabyggd.is
· Leikskólinn Balaborg, sími 475 9050, Skólabraut 11, 755 Stöðvarfirði, netfang balaborg@fjardabyggd.is
Upplýsingar um umsóknafresti og móttöku umsókna.
Sótt er um leikskólavist hjá leikskólastjórum eða rafrænt á vef viðkomandi leikskóla. Hægt er að sækja um leikskólavistun fyrir barn sem náð hefur 6 mánaða aldri.
Hvaða gögnum þarf að skila?
Vel útfylltu umsóknareyðublaði sem fæst á vef viðkomandi leikskóla.
Foreldrar/forráðmenn innrita börn sín með því að fylla út umsóknareyðublað rafrænt eða hjá leikskólastjóra. Hægt er að innrita börn frá 6. mánaða aldri.
Leikskólastjóri viðkomandi leikskóla metur umsóknir og bregst við í tölvupósti innan hálfs mánaðar. Í tölvupósti leikskólastóra kemur hvenær þess er vænst að barnið geti hafið skólagöngu. Haft er samband við foreldra/forráðamenn þegar barn hefur fengið inngöngu í leikskóla. Forráðamenn skulu staðfesta, innan sjö daga, að þeir taki leikskólaplássið. Hafi staðfesting ekki borist frá forráðamönnum þegar svarfrestur rennur út er nafn barnsins tekið af lista og öðru barni boðið plássið. Tilkynna skal foreldrum með góðum fyrirvara hvenær barn getur hafið leikskólagöngu og eigi síðar en 3 vikum áður en leikskóladvöl hefst.
Hvernig eru ábendingar og kvartanir meðhöndlaðar?
Ábendingum og/eða kvörtunum skal komið til viðkomandi skólastjóra eða fræðslustjóra á netfangið fjardabyggd@fjardabyggd.is.
Hver hefur yfirumsjón með þjónustunni?
Fræðslustjóri, thoroddur.helgason@fjardabyggd.is. Sími: 470-9000 Fax: 470-9001.