Upplýsingar um skipulagðar samgöngur í Fjarðabyggð og nágrenni.
Leiðakerfi og tímatafla. (gildir frá 24.2.2012)
Sumaráætlun gildir frá 15.5.2012:
Leiðakerfi og tímatafla sumaráætlun
Leið 1 sumaráætlun
Leið 2 sumaráætlun
Leið 3 sumaráætlun
Sjá einnig upplýsingar um ferjusiglingar í Mjóafjörð
1. Hvaða þjónustu er lýst?
Um er að ræða tilraunaverkefni um skipulagðar samgöngur í Fjarðabyggð og nágrenni frá 1. janúar 2012 til 31. desember 2012. Miðja leiðakerfisins er í Molanum á Reyðarfirði og þaðan eru ferðir til Norðfjarðar, um suðurfirðina til Breiðdalsvíkur og til Egilsstaða og til baka. Akstur Fjarðabyggðar, stór hluti af akstri Alcoa Fjarðaáls og sérleyfisakstur SSA fellur undir leiðakerfið.
2. Fyrir hverja er þjónustan
Þjónustan er fyrir íbúa í Fjarðabyggð, Fljótsdalshéraði og á Breiðdalsvík sem ferðast reglulega milli staða vegna vinnu, skóla, íþróttaiðkunar eða annars. Einnig er aksturinn ætlaðar fyrir stakar ferðir íbúa og ferðamanna en hægt er að kaupa 10 og 20 miða kort. Notendur sem eru 16 ára og eldri kaupa miða eða mánaðarkort til þess að nýta sér aksturinn. Notendur sem eru yngri en 16 ára nota þjónustuna frítt.
3. Hvað kostar þjónustan?
1 miði - 1.500.- kr.
10 miðar - 6.000.- kr.
20 miðar - 10.000.- kr.
Mánaðarkort kostar 10.000 kr. Hægt er að kaupa kort sem gildir fleiri mánuði.
Ekki er hægt að greiða fargjald til bílstjóra í rútu
4. Hvar er þjónustan veitt ?
Upplýsingar um stoppistöðvar Norðfjörður; Eskifjörður; Reyðarfjörður; Fáskrúðsfjörður; Stöðvarfjörður
Sjá einnig upplýsingar um ferjusiglingar í Mjóafjörð
5. Upplýsingar um korta- og miðasölu
Hægt er að kaupa miða á eftirfarandi stöðum:
-
Reyðarfjörður:
Íþróttahús, Heiðarvegur 10.
Skrifstofur Fjarðabyggðar, Hafnargötu 2. Opið er alla virka daga frá klukkan 9:00-16:00.
-
Eskifjörður:
Sundlaug, Dalbraut 3a, sjá opnun sundlaugar Sjá uppl. um opnun sundlauga·
Íþróttahús, Lambeyrarbraut 14.
-
Norðfjörður
Sundlaug, Miðstræti 15, Sjá uppl. um opnun sundlauga Íþróttahús, Mýrargata 10b.
-
Fáskrúðsfjörður
Íþróttahús, Óseyri 1.
Sundlaug, Skólavegi 37, Sjá uppl. um opnun sundlauga
-
Stöðvarfjörður:
Íþróttahús/sundlaug, Skólabraut 20, Sjá uppl. um opnun sundlauga
-
Breiðdalsvík:
Íþróttamiðstöð Breiðdalshrepps, Selnesi, breiddalur.is
-
Egilsstaðir:
Kaffiterían á Egilsstaðaflugvelli, opin í tengslum við flug
Upplýsingamiðstöð Austurlands, Miðvangi 1, sjá opnunartíma
- Miðar og mánaðarkort eru seld í sundlaugum/íþróttahúsum. Þar eru miðar afhentir en kort eru send með pósti innan 3 virkra daga frá kaupum. Sjá uppl. um opnun sundlauga
- Einnig má greiða fyrir mánaðarkort í heimabanka eða banka. Greiðslur skal leggja inn á bankreikning 0569-14-700401 Kt. 470698-2099. Kvittun/staðfesting skal send á netfangið samgongur@fjardabyggd.is. Þar þarf að koma fram kennitala, nafn og heimilisfang notanda kortsins.
- Þegar kvittun / staðfesting berst á netfangið samgongur@fjardabyggt.is er sérstakt mánaðarkort búið til og sem er sent notanda í landpósti innan þriggja daga.
- Hægt er að nota útprentaða staðfestingu / kvittun í 3 daga eftir að kort er greitt í heimabanka – þangað til kort berst notanda í landpósti.
6. Hvernig eru ábendingar og kvartanir meðhöndlaðar?
Tekið er við ábendingum á skiptiborði Fjarðabyggðar í síma 470 9000. Einnig tekur mannvirkjastjóri við kvörtunum í síma 470 9000, netfang fjardabyggd@fjardabyggd.is
7. Hver hefur yfirumsjón með þjónustunni?
Framkvæmdasvið Fjarðabyggðar í bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði hefur yfirumsjón með þjónustunni. Allar upplýsingar eru veittar á skiptiborði Fjarðabyggðar í síma 470 9000.
Mannvirkjastjóri sem sviðstjóri framkvæmdasviðs Fjarðabyggðar, sími 470 9000, netfang johann.edvald@fjardabyggd.is