Spurt og svarað um snjómokstur og hálkueyðingu:



Snjómokstur og hálkueyðing



Hvaða þjónustu er verið að lýsa?



 Snjómokstur og hálkueyðing

 

Fyrir hverja er þjónustan og/eða hvaða skilyrði eru sett til þess að hægt sé að sækja að sækja um þjónustuna?



Þjónustan er fyrir alla


Hvað kostar þjónustan?



Ekki er greitt sérstaklega fyrir snjómokstur en hann er greiddur af útsvari til bæjarsjóðs.

 

Hvar er þjónustan veitt, hvenær, símanúmer og netfang?



Þjónustan er veitt í öllum þéttbýliskjörnum Fjarðabyggðar og  í samvinnu við Vegagerðina um safnvegi sem hlíta reglum um helmingsmokstur. Snjómokstur fer fram alla virka daga á tímabilinu kl. 05:00 til 16:00, á laugardögum á milli 08:00 til 14:00 en ekki er gert ráð fyrir snjómokstri á sunnudögum. Verkstjórar á hverjum stað stjórna snjómokstri. Hægt er að fá nánari upplýsingar eða koma athugasemdum í síma 470 9040 eða thjonusta@fjardabyggd.is .



Hvernig eru ábendingar og kvartanir meðhöndlaðar?

Tekið er við ábendinum og kvörtunum hjá þjónustumiðstöð Fjarðabyggðar í síma 470-9040 og á netfangið thjonusta@fjardabyggd.is.  Þær eru skráðar og teknar fyrir á verkstjórafundum en öllum ábendingum og kvörtunum er svarað.

Hver hefur yfirumsjón með þjónustunni?

 
Mannvirkjastjóri, mannvirkjastjori@fjardabyggd.is í síma 470 9000.