Hvaða þjónustu er verið að lýsa?
Sótt er um stöðuleyfi til byggingarfulltrúa og er umsókn um það hluti af byggingaleyfisumsókn. Stöðuleyfi er heimild til að staðsetja hjólhýsi, gám eða bát á tilteknum stað í takmarkaðan tíma. Stöðuleyfi getur gilt mest eitt ár í senn.
Hvað kostar þjónustan?
Sjá gjaldskrá í samþykkt um gatnagerðagjald, byggingarleyfisgjald, og stofngjald holræsa og vatnsveitu í Fjarðabyggð.
Hvar er þjónustan veitt, hvenær, símanúmer og netfang?
Fyrirspurnir um stöðuleyfi og hvort leyfisveiting kemur til greina eru sendar til byggingarfulltrúa á netfangið byggingarfulltrui@fjardabyggd.is eða í síma 470 9000.
Upplýsingar um umsóknafresti og móttöku umsókna.
Umsóknir eru sendar byggingarfulltrúa á netfangið byggingarfulltrui@fjardabyggd.is, á Hafnargötu 2, 730 Fjarðabyggð eða afhendar á bókasöfnum Fjarðabyggðar.
Hvaða gögnum þarf að skila?
Sótt er um stöðuleyfi á eyðublaði fyrir byggingarleyfi . Sjá einnig „gátlista“ með upplýsingum um viðbótargögn (er í vinnslu)
Ferli umsóknar
1. Umsækjandi sendir inn umsókn.
2. Byggingarfulltrúi tekur umsóknir til meðferðar/afgreiðslu tvisvar í mánuði.
3. Málið fer fyrir umhverfis- og skipulagsnefnd sem fundar einu sinni í mánuði.
4. Svarbréf sent til umsækjanda.
Hvernig eru ábendingar og kvartanir meðhöndlaðar?
Ábendingum og kvörtunum má koma til umhverfisstjóra - umhverfisstjori@fjardabyggd.is og forstöðumanns stjórnsýslu fjardabyggd@fjardabyggd.is í síma 470 9000.
Hver hefur yfirumsjón með þjónustunni?
Umhverfisstjóri Fjarðabyggðar í síma 470 9000 - umhverfisstjori@fjardabyggd.is