Hvaða þjónustu er lýst?
Fjárhagsaðstoð
Fyrir hverja er þjónustan og/eða hvaða skilyrði eru sett til þess að hægt sé að sækja að sækja um þjónustuna?
Rétt á fjárhagsaðstoð eiga þeir sem eiga lögheimili í Fjarðabyggð og hafa tekjur og eignir undir ákveðnum viðmiðunarmörkum. Aðstoðin getur verið í formi láns eða styrks.
Umsækjandi og maki/sambúðaraðili skulu kanna til þrautar rétt til annarra greiðslna áður en leitað er eftir fjárhagsaðstoð, þar með talið frá almannatryggingum, atvinnuleysistryggingum, lífeyrissjóðum og sjúkrasjóðum stéttarfélaga. Hafi umsækjandi sagt starfi sínu lausu án viðhlítandi skýringa eða hafnað starfsleitaráætlun, er heimilt að skerða fjárhagsaðstoðina um helming mánuðinn sem atvinnutilboðinu var hafnað og næsta mánuð á eftir.
Umsækjandi þarf að tilkynna um breytingar á tekjum og fjölskylduaðstæðum, en slíkar breytingar geta haft áhrif á rétt til fjárhagsaðstoðar. Fjárhagsaðstoð sem veitt er á grundvelli rangra eða villandi upplýsinga er alltaf endurkræf.
Hvað kostar þjónustan.
Þjónustan er gjaldfrjáls. Óski umsækjandi þess að fjárhagsaðstoð sé í formi láns er lánið vaxtalaust. Fjárhagsaðstoð til einstaklings getur verið allt að kr. 115.567 á mánuði eftir skatt og kr. 184.907 á mánuði til hjóna eða fólks í sambúð. Aðstoðin er óháð barnafjölda, þar sem reiknað er með að barnabætur, meðlög og barnalífeyrir mæti kostnaði vegna barna.
Hvar er þjónustan veitt, hvenær, símanúmer og netfang?
Umsóknareyðublað er hægt að nálgast á bókasöfnum í Fjarðabyggð og á heimasíðu Fjarðabyggðar. Afgreiðsla umsókna er hjá starfsfólki félagsþjónustu í síma 470-9000,
netfang, felagsthjonusta@fjardabyggd.is
Upplýsingar um umsóknafresti og móttöku umsókna.
Umsókn gildir að öllu jöfnu frá þeim degi sem beiðni berst um aðstoð (eða umsókn er lögð fram). Dagsetja skal umsókn um fjárhagsaðstoð frá síðustu mánaðamótum og skoða jafnframt tekjur frá mánaðamótum á undan til að athuga hvort þær hafi verið hærri en viðmiðunartekjur. Framfærsla umsóknarmánaðar skerðist um þá fjárhæð. Athugið að umsókn sem er ekki fyllt út að fullu er ógild.
Hvaða gögnum þarf að skila?
- Staðfestu afriti af síðasta skattframtali.
- Afritum af launaseðlum síðustu þriggja mánaða EÐA afritum af launaseðlum síðustu þriggja mánaða frá Tryggingastofnun ríkisins EÐA afritum af greiðsluseðlum atvinnuleysisbóta síðustu þriggja mánaða og afrit af stimpilkorti frá Vinnumiðlun
- Læknisvottorð ef við á.
- Skattkort.
- Staðfesting frá skóla ef umsækjandi er í námi.
- Staðfesting skóla um námsárangur ef umsækjandi er í námi.
Ferli umsóknar.
· Hvar er tekið við umsókn?
Tekið er við umsóknum á bókasöfnum Fjarðabyggðar. Einnig er hægt að póstsenda umsóknir á
Skrifstofur Fjarðabyggðar, Hafnargötu 2, 730 Fjarðabyggð
· Hvernig/hvar fer fram mat á umsókn?
Mat á umsóknum fer fram á starfsfundum félagsþjónustu og er umsókn metin með tilliti til fjárhags- og félagslegra upplýsinga sem fram koma á umsóknum. Allar tekjur einstaklings/maka, í þeim mánuði sem sótt er um og mánuðinn á undan, aðrar en greiðslur vegna barna og húsaleigubætur/vaxtabætur, koma til frádráttar við ákvörðun um upphæð fjárhagsaðstoðar. Með tekjum er hér átt við allar tekjur einstaklings/maka sem ekki eru sérstaklega til framfærslu barna, þ.e. atvinnutekjur, allar tekjur frá Tryggingastofnun ríkisins, greiðslur úr lífeyrissjóðum, atvinnuleysisbætur, leigutekjur o.s.frv. Eigi umsækjandi rétt til atvinnuleysisbóta, skal reikna atvinnuleysisbætur honum til tekna, hvort sem hann hefur stimplað sig eða ekki, nema framvísað sé læknisvottorði.
· Hvernig/hvar er tekin ákvörðun um afgreiðslu umsóknar?
Umsóknir eru teknar fyrir af starfsfólki félagsþjónustu Fjarðabyggðar annan hvern miðvikudag.
· Hvernig fær umsækjandi upplýsingar um niðurstöðuna?
Öllum umsóknum er svarað skriflega í kjölfar starfsfunda.
· Hvernig fer framkvæmd þjónustunnar fram ef umsókn er samþykkt?
Sé umsókn samþykkt hefur starfsfólk félagsþjónustu samband við umsækjanda og greiðir þá upphæð sem umsækjandi á rétt á inn á reikning á hans nafni næstkomandi mánaðarmót.
· Hvað þarf umsækjandi að gera í umsóknarferlinu og þegar kemur að framkvæmd þjónustunnar?
Umsækjandi skila inn umsókn sem er að fullu útfyllt og skila öllum fylgigögnum. Sé sótt um fjárhagsaðstoð til fleiri en eins mánaðar þarf viðkomandi að hafa samband við starfsmenn félagsþjónustu fyrir 25. hvers mánaðar til að gera grein fyrir þörf sinni á áframhaldandi aðstoð. Þess ber að geta að ákvarðanir um aðstoð nær að jafnaði ekki yfir lengra tímabil en 3 mánuði og aldrei yfir lengra tímabil en 6 mánuði í senn.
Hvernig eru ábendingar og kvartanir meðhöndlaðar?
Allar ábendingar og kvartanir skulu sendar á forstöðumann stjórnsýslu á netfangið fjardabyggd@fjardabyggd.is og í síma 470-9000.
Hver hefur yfirumsjón með þjónustunni?
Félagsmálastjóri hefur yfirumsjón með þjónustunni – felagsthjonusta@fjardabyggd.is og í síma 470 9000.