Fara í efni

Páskafjör í Fjarðabyggð

Dags
1. apríl - 6. apríl
Staðsetning
Fjarðabyggð
Páskafjör í Fjarðabyggð býður upp á fjölbreytta og skemmtilega dagskrá fyrir alla fjölskylduna. Um páskana verður líf og fjör víða um sveitarfélagið, með viðburðum fyrir börn og fullorðna, útivist, menningu, tónlist og páskastemningu. Við hvetjum íbúa og gesti til að kynna sér dagskrána vel og njóta páskanna í Fjarðabyggð.
Deildu

Miðvikudagur 1. apríl

07:00–20:00 Sundlaugar opnar í Neskaupstað og á Eskifirði
14:00–19:00 Oddsskarð opið
18:00 Pílumót í Austra húsinu (nánar á Facebook-síðu Píluklúbbs Austurlands)

Skírdagur  2. apríl

10:00–16:00 Oddsskarð opið
10:00–18:00 Sundlaugar opnar í Neskaupstað og á Eskifirði
10:00 King of Oddsskarð (keppt í bretta- og skíðaflokki)
16:00 Austurland Freeride Festival býður upp á ferð frá topplyftu og niður í sveit fyrir vana ef aðstæður leyfa. Upplýsingar: Sævar, sími 698 6980.
18:00–20:00 Pizzahlaðborð á Café Cosy
21:00–01:00 Partýbingó með Tony & Svens í Valhöll

Föstudagurinn langi  3. apríl 

10:00–16:00 Oddsskarð opið
10:00–18:00 Sundlaugar opnar í Neskaupstað og á Eskifirði
11:00 Æðruleysismessa í Stöðvarfjarðarkirkju
Séra Benjamín Hrafn leiðir stundina. Hljómsveit sér um tónlistina. Boðið verður upp á súpu og brauð að stund lokinni. Samskot verða tekin fyrir veitingum. 
11:00–14:00 Snjósleðaferð á Gerpissvæðið
Mæting í Oddssdal ofan við Skuggahlíð í Norðfirði
15:00 Pond Skim í Oddsskarði
16:00 Austurland Freeride Festival býður upp á ferð frá topplyftu og niður í sveit fyrir vana ef aðstæður leyfa. Upplýsingar: Sævar, sími 698 6980.
16:30–20:00 Aprés Ski-partý í Randulffssjóhúsi
20:00 Hipsumhaps tónleikar í Frystihúsinu í Breiðdalsvík. 
21:00 Súellen tónleikar í Tónspili. Miðasala fer fram á Tix.is
21:00 Rail Jam við Silfurskálann á Eskifirði
22:00 Páskabingóveisla á Café Cosy

Laugardagur 4. apríl

10:00–16:00 og 20:00–22:00 Oddsskarð opið
10:00–18:00 Sundlaugar opnar í Neskaupstað og á Eskifirði
10:00 Páskaeggjaleit á Mjóeyri fyrir 12 ára og yngri
11:00 Páskabrautin í Oddsskarði fyrir 12 ára og yngri
14:00–18:00 Barinn opinn á Hótel Eskifirði (bolti í beinni, spil og léttar veitingar)
15:00–17:00 Páskasmiðja: bingó og litakósý fyrir börn og fjölskyldur í Stríðsárasafninu á Reyðarfirði
16:00 Austurland Freeride Festival býður upp á ferð frá topplyftu og niður í sveit fyrir vana ef aðstæður leyfa. Upplýsingar: Sævar, sími 698 6980.
20:00–22:00 DJ Tony í Oddsskarði
22:00 Flugeldasýning í Oddsskarði
22:00 Músíkbingó á Beituskúrnum (ef veður leyfir, annars á Hildibrand)
23:00 Lifandi tónlist á Café Cosy með Júlíusi Óla trúbador

Páskadagur 5. apríl

06:00 Hátíðarganga út í Páskahelli á Norðfirði
10:00–16:00 Oddsskarð opið. Sparifatadagur og hvetjum við öll til að mæta í sparifötum
10:00–18:00 Sundlaugar opnar í Neskaupstað og á Eskifirði
10:00 Skíðamessa við skálann í Oddsskarði
11:00 Fjölskylduguðsþjónusta í Fáskrúðsfjarðarkirkju
13:00–15:00 Skíða- og brettaparakeppni. Leikreglur verða kynntar síðar. Skráningar fyrir pör sendast á skidaparakeppni@gmail.com fyrir 3. apríl
16:00 Austurland Freeride Festival býður upp á ferð frá topplyftu og niður í sveit fyrir vana, ef aðstæður leyfa. Nánari upplýsingar veitir Sævar í síma 698 6980
21:30 Páskamót Café Cosy í pílu. Skráning fer fram á staðnum

Annar í páskum 6. apríl

10:00–16:00 Oddsskarð opið
11:00–16:00 Sundlaugar opnar í Neskaupstað og á Eskifirði