mobile navigation trigger mobile search trigger
31.08.2015

441. fundur bæjarráðs

Bæjarráð - 441. fundur  

haldinn í Molanum fundarherbergi 3, mánudaginn 31. ágúst 2015

og hófst hann kl. 08:30

Fundinn sátu Jens Garðar Helgason formaður, Eydís Ásbjörnsdóttir, Jón Björn Hákonarson, Páll Björgvin Guðmundsson bæjarstjóri og Gunnlaugur Sverrisson forstöðumaður stjórnsýslu, er jafnframt ritaði fundargerð.

Dagskrá:

1.

1505123 - Lagning háspennustrengs um Norðfjarðargöng.

Lagt fram bréf Landsnets frá 25.ágúst er varðar háspennustreng um Norðfjarðargöng. Bæjarráð ítrekar nauðsyn þess að lagður verði háspennustrengur um Norðfjarðargöng eins og gert er ráð fyrir. Bæjarstjóra falið að funda með Landsneti á næstunni.

 

2.

1507089 - Samgöngunefnd SSA - Fundargerðir 2015

Fundargerð 5.fundar samgöngunefndar SSA, lögð fram til kynningar.

 

3.

1506090 - Umsókn um lán frá Ofanflóðasjóði 2015

Ofanflóðasjóður hefur samþykkt lánveitingu í samræmi við umsókn Fjarðabyggðar að upphæð 40,8 milljónir króna vegna ofanflóða-framkvæmda á árinu 2014. Vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.

 

4.

1505092 - Kaup á endurskoðunarþjónustu Fjarðabyggðar

Á fundi bæjarstjórnar 18.júní sl. var samþykkt með 9 atkvæðum að gengið verði til samninga við KPMG endurskoðun um endurskoðunarþjónustu Fjarðabyggðar og stofnana árin 2015 til 2019. Lagður fram til kynningar samningur vegna endurskoðunarþjónustu er óskast staðfestur af bæjarráði. Bæjarstjóra falin undirritun samnings.

 

5.

1501271 - Fundargerðir stjórnar SSA 2015

Fundargerð 13.stjórnarfundar SSA lögð fram til kynningar.

 

6.

1503140 - Aðalfundur SSA 2015

Lagðar fram ályktanir aðalfundar SSA sem haldinn verður í haust. Bæjarráð mun fara yfir ályktanir sem fyrir liggja og meta hvort ástæða sé til að leggja fram fleiri ályktanir f.h. sveitarfélagsins.

 

7.

1403026 - Ofanflóðavarnir Eskifirði. Verkhönnun árfarvega

Hafsteinn Pálsson frá Ofanflóðasjóði og Hugrún Hjálmarsdóttir frá Eflu verkfræðistofu sátu þennan lið fundarins og fóru yfir framkvæmdir við ofanflóðavarnir í árfarvegum á Eskifirði.

 

8.

1506139 - Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2016

Þennan lið fundarins sat fjármálastjóri. Áframhald vinnu við fjárhagsáætlun 2016. Lagðir fram, með fyrirvörum, fjárhagsrammar vegna fjárhagsáætlunar 2016. Bæjarstjóra falið að úthluta fjárhagsrömmum til fastanefnda með skýringum.

 

9.

1508095 - Fjárhagsáætlun 2015 - viðauki 4

Framlagður viðauki 4 við Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar fyrir árið 2015 vegna nýs starfsmats í samræmi við kjarasamninga frá 1. maí 2014 og vegna úthlutunar í símenntunarpotti 2015. Bæjarráð samþykkkir viðauka 4 og vísar honum til staðfestingar bæjarstjórnar.

 

10.

1508097 - Málefni flóttamanna

Með tilliti til umræðu síðustu daga um hugsanlega móttöku Íslands á flóttamönnum, óskar bæjarráð eftir við félagsmálanefnd að tekin verði umræða í nefndinni og framkvæmd greining á vegum hennar á innviðum samfélagsins vegna móttöku flóttamanna.

 

11.

1402008 - Efling millilandaflugs um Egilsstaðaflugvöll

Þennan lið fundarins sátu Jóna Árný Þórðardóttir frá Austurbrú auk markaðs- og upplýsingafulltrúa og verkefnastjóra í atvinnumálum. Rætt um markaðssetningu Egilsstaðaflugvallar í tengslum við millilandaflug 2016.

 

12.

1406124 - Nefndaskipan Sjálfstæðisflokks 2014 - 2018

Magni Þór Harðarson tekur sæti í fræðslunefnd í stað Þórdísar Mjallar Benediktsdóttur en Þórdís hefur tekið við stöðu aðstoðarleikskólastjóra í Neskaupstað.

 

13.

1508013F - Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 125

Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar nr. 125, lögð fram til kynningar.

13.1.

1508075 - Framkvæmdaáætlun slökkviliðs fyrir árið 2016

Bæjarráð samþykkir að vísa framkvæmdaáætlun slökkviliðs til bæjarstjóra til frekari skoðunar í tengslum við fjárhagsáætlunargerð 2016.

 

 

14.

1508010F - Hafnarstjórn - 154

Fundargerð hafnarstjórnar nr. 154, lögð fram til kynningar.

 

15.

1508011F - Menningar- og safnanefnd - 16

Fundargerð menningar- og safnanefndar nr. 16 lögð fram til kynningar.

 

16.

1508012F - Íþrótta- og tómstundanefnd - 13

Fundargerð íþrótta- og tómstundanefndar nr. 13 lögð fram til kynningar.

 

 

Vegna persónulegra ástæðna munu Pálína Margeirsdóttir og Kristín Gestsdóttir taka þátt í hátíðahöldum á Íslandshátíð í Gravellines f.h. Fjarðabyggðar, í stað Jens Garðars Helgasonar og Jóns Björns Hákonarsonar.

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 12:15.