Reyðarfjarðarhöfn
Reyðarfjarðarhöfn þjónar aðallega sem vöruhöfn, en þar er einning nokkur löndun á frostnum uppsjávarafla í frystigeymslur. Þrjár meginbryggjur eru á Reyðarfirði, Vöruhöfnin, Olíbryggjan og L-ið. Sú síðastnefnda, L-ið (Ellið) hefur mest megnis verið notuð til viðlegu nú síðari ár. Landaður afli hefur að jafnaði numið á bilinu 5 til 20 þúsund tonnum síðustu ár. Austan megin við aðlbryggjur staðarins er Barkurinn, falleg trébryggja og vinsæll dorgveiði- og útsýnisstaður. Upprunalega var Barkurinn byggður laust fyrir aldamótin 1900. Heildarlengd bryggjukanta er 430 metrar. Mesta dýpi við kant er 8 metrar á 80 metra kafla. Annars er dýpi 6,5 til 7,5 metri vð aðra viðlegukanta.