Menning og félagslíf

Menning og fjölbreytt félagslíf á sér sterkar rætur í bæjarkjörnum Fjarðabyggðar. Bæjarhátíðir eru jafn ólíkar og þær eru margar og á tónlistarsviðinu starfa kórar, hljómsveitir og jazz- og blúsfélag. Tónlistarmiðstöð Austurlands er á Eskifirði og er fjöldi tónlistarviðburða jafnan í Fjarðabyggð árið um kring.
Jensenshús, býður skapandi huga og hönd einstaka aðstöðu, í elsta húsi Eskifjarðar, sem hefur nýlega verið uppgert í upprunalegri mynd sem listamannaíbúð. Þá hafa kvenfélög, Rótarý- og Lions-klúbbar löngum haldið uppi merkjum öflugs starfs í góðgerðar- og mannúðarmálum ásamt þeim sex Rauðakrossdeildum sem eru í Fjarðabyggð.

Söfnin í Fjarðabyggð eru sér á báti. Spannar safnakosturinn allt frá almennum bókasöfnum og ljósmyndasöfnum að sannkölluðum safnaperlum, sem geyma sögu sveitarfélagsins hvert með sínu móti. Byggðasöfn byggja mörg hver á sögulegum grunni og hefur við uppbyggingu þeirra verið lögð áhersla á að laða fram andrúm og aðstæður liðins tíma. Bókasöfnin í Fjarðabyggð eru sjö talsins og hafa þá sérstöðu að vera jafnframt þjónustugáttir fyrir stjórnsýslu sveitarfélagsins.
Safnastofnun Fjarðabyggðar hefur umsjón með því fjölbreytta safnastarfi sem til staðar er í sveitarfélaginu.