BÆJARSTJÓRN Fjarðabyggðar
Bæjarstjórn Fjarðabyggðar er skipuð níu bæjarfulltrúum sem kosnir eru til fjögurra ára í almennum kosningum til sveitarstjórna. Hún fer með yfirstjórn stofnana og fyrirtækja á vegum bæjarins, kemur fram í nafni sveitarfélagsins og gætir hagsmuna þess og íbúa. Bæjarstjórn heldur reglulega fundi tvisvar í mánuði, að jafnaði fyrsta og þriðja fimmtudag hvers mánaðar, að sumarmánuðum undanskildum og fer þá bæjarráð með umboð hennar og afgreiðir mál.
Bæjastjórn ræður málefnum sveitarfélagsins innan þeirra marka sem lög setja og samþykktir um stjórn og fundarsköp Fjarðabyggðar, en svo nefnast þær reglur sem sveitarfélagið hefur sett sér um stjórn þess og stjórnsýslu. Bæjarstjórnarfundir eru að jafnaði haldnir í fundarsal sveitarfélagsins að Hafnargötu 2, Reyðarfirði og hefjast kl. 16.00.
Forseti bæjarstjórnar er Jón Björn Hákonarson
Fundirnir eru opnir og er þeim sjónvarpað beint á vef sveitarfélagsins.