mobile navigation trigger mobile search trigger

SKIPULAGS- OG BYGGINGARMÁL

Umhverfis- og skipulagssvið vinnur að skipulags- og byggingarmálum Fjarðabyggðar. Sviðið fylgir eftir aðalskipulagi sveitarfélagsins, annast aðal- og deiliskipulagsgerð, útgáfu leyfisveitinga á sviði skipulags- og byggingamála og hefur eftirlit með verklegum framkvæmdum. Gildandi aðalskipulag er til ársins 2027 og var við gerð þess lögð áhersla á víðtækt samráð við íbúa Fjarðabyggðar og aðra haghafa.

Í aðalskipulaginu kemur fram sú framtíðarsýn og stefna sem var mótuð fyrir sameinaða Fjarðabyggð.

Skipulags- og byggingarfulltrúi er með viðtalstíma á þriðjudögum frá klukkan 13:00 - 14:00 og fimmtudögum frá klukkan 10:00 - 11:00.

Tengsl bæjarkjarnanna Norðfjarðar, Eskifjarðar, Reyðarfjarðar, Fáskrúðsfjarðar, Stöðvarfjarðar, Breiðdals og Mjóafjarðar við náttúruna, voru höfð að leiðarljósi við aðalskipulagsgerðina. Tengsl byggðarinnar við söguna vógu einnig þungt, en þéttbýli í Fjarðbyggð hefur frá upphafi byggst á sjósókn og verslun. Bryggjur, sjóhús og gamalt verslunarhúsnæði bera með þessu móti vitni um fyrri tíma, auk þess sem finna má í Fjarðabyggð einstakar minjar frá veru breska setuliðsins á árunum síðari heimsstyrjarldarinnar. Þá ræður landslag miklu um mynstur byggðarinnar og er í aðalskipulaginu tekið mið af því með lágreistri byggð.