mobile navigation trigger mobile search trigger
22.07.2024

Auglýst eftir áhugasömum aðilum vegna uppbyggingar og reksturs ljósleiðaranets í Fjarðabyggð

Fjarskiptasjóður áformar framhald af verkefninu Ísland ljóstengt með það að markmiði að ljúka styrktri ljósleiðaravæðingu heimilisfanga með eitt eða fleiri lögheimili í öllum þéttbýlisstöðum og byggðakjörnum landsins fyrir árslok 2026 á grundvelli samvinnu íbúa, sveitarfélaga, fjarskiptafyrirtækja og ríkisins.

Auglýst eftir áhugasömum aðilum vegna uppbyggingar og reksturs ljósleiðaranets í Fjarðabyggð

Sveitarfélögum stendur til boða 80.000 kr. styrkur til að tengja hvert styrkhæft heimilisfang sem ekki hefur aðgang að ljósleiðaratengingu og engin áform fjarskiptafyrirtækja ná til.

Fjarðabyggð hyggst þiggja tilboð fjarskiptasjóðs og vill því kanna áhuga fjarskiptafyrirtækja á að taka að sér uppbyggingu og rekstur ljósleiðaraneta í öllu þéttbýli Fjarðabyggðar fyrir árslok 2026 sem uppfyllir markmið Fjarskiptasjóðs ásamt því að fyrirtæki og stofnanir verði jafnframt tengd ljósleiðaraneti.

Áður en verkefninu verður hrundið af stað þarf sveitarfélagið að fá upplýsingar um eftirfarandi:

  • Hvort fjarskiptafyrirtæki áformi að tengja styrkhæf heimilisföng á markaðslegum forsendum í bæjarkjörnum Fjarðabyggðar.
  • Hvort fjarskiptafyrirtæki áformi að leggja og tengja eigið ljósleiðaranet í skurði/lagnaleið sem sveitarfélagið styrkir.
  • Hvernig fjarskiptafyrirtæki áformi framkvæmd uppbyggingar ljósleiðarakerfisins hvað varðar forgangsröðun og tímasetningar.
  • Hvort fjarskiptafyrirtæki hyggst leggja á tengigjald og ef svo er hversu hátt og hvernig innheimtu þess yrði háttað.
  • Hvort og þá hversu háan styrk fjarskiptafyrirtæki óski eftir a) til viðbótar við styrk Fjarskiptasjóðs til að tengja styrkhæf lögheimili og b) til að tengja fyrirtæki og stofnanir.

Lista yfir styrkhæf heimilisföng í Fjarðabyggð geta áhugasöm fjarskiptafyrirtæki nálgast með því að hafa samband við Gunnar Jónsson bæjarritara, gunnar.jonsson@fjardabyggd.is.

Þau fjarskiptafyrirtæki sem kunna að hafa áhuga veiti ofangreindar upplýsingar fyrir kl. 17, föstudaginn 9. ágúst n.k. í netfangið fjardabyggd@fjardabyggd.is.

Bæjarritari