mobile navigation trigger mobile search trigger
06.05.2024

Úthlutað úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða

Í síðastliðinni viku úthlutaði Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, tæplega 540 milljónum króna úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða fyrir árið 2024. 29 verkefni hljóta styrk úr sjóðnum og dreifast um landið allt. Einn af hæstu styrkjunum hlaut Jökuldalur slf., 90 milljónir króna til áframhaldandi uppbyggingar í landi Grundar við Stuðlagil. Alls hlutu sex verkefni á Austurlandi styrk.

Úthlutað úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða
Mynd: Páll G. Ásgeirsson

Eftirfarandi verkefni hlutu styrk í Fjarðabyggð:

2,46 milljónir til að hanna göngustíg við Bleiksárfoss á Eskifirði. Verkefnið snýst um hönnun svæðisins við Bleiksárfoss á Eskifirði. Markmiðið er að svæðið geti tekið á móti þeim aukna fjölda ferðamanna sem þangað koma, tryggja sjálfbærni náttúru svæðisins og koma í veg fyrir hentistígamyndun. Verkefnið er á áfangastaðaáætlun og samræmist helstu markmiðum sjóðsins um náttúruvernd og uppbyggingu innviða. Verkefnið er á áfangastaðaáætlun.

25 milljónir til að útbúa göngustíga o.fl. við Streitishvarf við Breiðdalsvík. Streitishvarf á Streitishorni milli Breiðdalsvíkur og Berufjarðar er vinsæll viðkomustaður ferðamanna. Verkefnið snýst um gerð viðtöku fyrir gesti og göngustíga sem bæði vernda viðkvæmar jarðmyndanir og varpsvæði auk þess að koma í veg fyrir slys en hætta er á falli niður í grýtta fjöru. Verkefnið fellur því vel að áherslum sjóðsins um náttúruvernd, bætt öryggi og aðgengi. Verkefnið er á áfangastaðaáætlun.

Í gegnum árin hafa fjölmörg verkefni á Austurlandi hlotið styrki úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða og er hægt að skoða þau nánar í kortasjá Ferðamálastofu.

Áfangastaðaáætlun Austurlands er þróunar- og aðgerðaáætlun landshlutans og er unnin í samstarfi við sveitarfélög, fyrirtæki, íbúa og aðra hgasmnaaðila. Markmið áætlunarinnar er að gera Austurland að ákjósanlegum stað til að búa á og sækja heim.

Nánari upplýsingar um úthlutanir ársins má finna á vef Ferðamálastofu.

Frétt birtist á vef Austurbrúar