mobile navigation trigger mobile search trigger
03.11.2023

Trommukennari Tónlistarskóli Eskifjarðar og Reyðarfjarðar

Tónlistarskóli Eskifjarðar og Reyðarfjarðar óska eftir að ráða trommukennara í 50% starf.

Í Tónlistarskóla Eskifjarðar og Reyðarfjarðar eru um 115 nemendur. Kennsla fer fram að mestu á skólatíma. Tónlistarskólinn býr að góðri aðstöðu og er til húsa í sama húsnæði og grunnskólarnir á Eskifirði og á Reyðarfirði. Gott samstarf er við grunnskólana og góður starfsandi.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Kennsla á trommur
  • Möguleiki á kennslu á fleiri hljóðfæri ef áhugi er fyrir hendi

Menntun og hæfniskröfur:

  • Tónlistarkennaramenntun eða haldgóð menntun sem nýtist í starfi
  • Góð færni í hljóðfæraleik
  • Reynsla af kennslu eða menntun í uppeldisfræði
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Hreint sakavottorð

Starfslýsing tónlistakennara

Staðan er laus frá 1. janúar 2024. Launakjör eru samkvæmt samningi LN og KÍ/FÍH Umsóknarfrestur er til 31.desember

Hvetjum eintaklinga af öllum kynjum að sækja um.

Umsóknum skal fylgja greinargott yfirlit yfir nám og störf, ábendingar um meðmælendur sem og almennar upplýsingar um viðkomandi.

Upplýsingar veitir skólastjóri Alda Rut Vestmann, netfang alda@skolar.fjardabyggd.is

Sótt er um starfið inná ráðningarvef Fjarðabyggðar