mobile navigation trigger mobile search trigger
16.11.2024

Björn Hafþór afhendir nýjan disk ,,Við skulum ekki hafa hátt"

Björn Hafþór Guðmundsson kom á fund bæjarráðs Fjarðabyggðar á dögunum og færði fulltrúum sveitarfélagsins þeim Jóni Birni Hákonarsyni, forseta bæjarstjórnar, Ragnari Sigurðssyni, formanni bæjarráðs og Jónu Árný Þórðardóttur, bæjarstjóra nýútkomin hljómdisk ..Við skulum ekki hafa hátt", á disknum eru 14 lög sem Björn samdi sjálfur ásamt textum við 12 þeirra.

Björn Hafþór afhendir nýjan disk ,,Við skulum ekki hafa hátt"
Jón Björn Hákonarson, forseti bæjarstjórnar, Jóna Árný Þórðardóttir, bæajarstjóri, Björn Hafþór Guðmundsson og Ragnar Sigurðsson

Við hin tvö lögin sömdu textana þau Hrönn Jónsdóttur, frá Djúpavogi og Stefán Bragason. Margir Austfirðingar komu að gerð plötunnar, má þar nefna Daníel Arason frá Neskaupstað, Guðmundur Rafnkell og Friðjón Jóhannsson. Grafísk hönnun var svo í höndunum á Vilhjálmi B. Warén