mobile navigation trigger mobile search trigger

Fatlað fólk

Fatlað fólk getur þurft á stuðningi að halda til að lifa sjálfstæðu og innihaldsríku lífi á eigin forsendum og taka virkan þátt í samfélaginu. Fjarðabyggð hefur samning sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks (SRFF) að leiðarljósi í þjónustu við fatlað fólk. Í honum fest viðurkenning á fjölbreytileika mannlífsins og því að fatlað fólk njóti mannréttinda til jafns við aðra.

Til að eiga rétt á þjónustu þurfa umsækjendur að uppfylla eftirfarandi skilyrði:

  • Eiga lögheimili í Fjarðabyggð.
  • Vera metin í þörf fyrir stuðning samkvæmt reglum Fjarðabyggðar um stuðningsþjónustu.
  • Foreldrar fari með forsjá með þeim börnum sem stuðningur snýr að.

Fyrsta skref í að sækja um þjónustu er að bóka samtal hjá ráðgjafa fjölskyldusviðs Fjarðabyggðar.

Sótt er um alla þjónustu í gegnum íbúagátt Fjarðabyggðar á fjardabyggd.is

Ráðgjöf fyrir fatlað fólk og aðstandendur:

Fatlað fólk getur mætt áskorunum í daglegu lífi. Ráðgjöf fyrir fatlað fólk felur í sér persónulegan stuðning og leiðsögn fyrir einstaklinga. Markmið ráðgjafar er að aðstoða fólk við að þekkja þjónustuna sem er í boði og aðstoða við að lifa sjálfstæðu og virku lífi.

Húsnæði fyrir fatlað fólk:

Fatlað fólk sem fellur undir reglur Fjarðabyggðar um félagslegt leiguhúsnæði getur sótt um félagslega leiguíbúð í Fjarðabyggð. Á eyðublaðinu skal merkja við ef þörf er á sérstöku húsnæði vegna fötlunar og skal þá gera mat á þeirri þörf áður en íbúð er úthlutað.

Í Fjarðabyggð er einn búsetukjarni með sólarhringsþjónustu, staðsettur að Bakkabakka 15 í Neskaupstað.

Unnið er að byggingu nýs 6 íbúða búsetukjarna og skammtímavistunar á Reyðarfirði. Áætlað er að byggingin verði tilbúin í byrjun sumars 2025.

Stuðningsþjónusta:

Stuðningsþjónusta fyrir fullorðið fatlað fólk mætir því á þeim stað sem það er á í lífinu og fer fram þar sem best hentar, hvort sem það er á heimili þess, utan heimilis eða í gegnum rafrænar lausnir. Fólk fær stuðning við að útfæra þjónustuna þannig að hún styðji það við að lifa sjálfstæðu lífi, fást við dagleg verkefni og efla þátttöku sína í samfélaginu.

Notendastýrð persónuleg aðstoð:

Notendastýrð persónuleg aðstoð byggir á hugmyndafræðinni um sjálfstætt líf. Fatlað fólk með NPA stýrir sjálft fyrirkomulagi þjónustunnar, ákveður hvaða aðstoð er veitt, hvernig hún er skipulögð og hver veitir hana. Fyrsta skref í að sækja um NPA er að bóka samtal við ráðgjafa fjölskyldusviðs.

Beingreiðslusamningar:

Beingreiðslusamningar eru form af notendasamningum líkt og NPA. Samningurinn felur í sér að notandi stýrir þeirri aðstoð sem hann fær, ákveður hvenær og hvar hún er veitt og hver veitir hana. Notandi sér um starfsmannahald.

Stuðningsfjölskyldur:

Stuðningsfjölskyldur veita foreldrum stuðning við foreldrahlutverkið. Hlutverk þeirra er m.a. að veita foreldrum tækifæri til hvíldar, styrkja stuðningsnet barnanna og auka möguleika þeirra á félagslegri þátttöku. Sótt er um rekstrarleyfi sem stuðningsfjölskylda hjá Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála.

Sjá nánar hér: https://island.is/s/gev/malaflokkar-leyfisumsokna

Stuðningsþjónusta fyrir börn og fjölskyldur þeirra felur í sér fjölbreyttar lausnir sem eru útfærðar eftir þörfum hvers og eins. Foreldrar geta fengið stuðning við uppeldishlutverk sitt og börn fá stuðning til að auka virkni, bæta samskipti og efla sjálfstraust sitt.

Atvinna og virkni fyrir fatlað fólk:

Fatlað fólk er hvatt til að sækja um almenn störf sem auglýst eru hjá Fjarðabyggð. Ef af ráðningu verður er reynt að mæta sérhæfðum þörfum starfsfólks eftir bestu getu. Þegar þörf er á aðstoð við atvinnuleit, þjálfun eða stuðningur við að halda vinnu á almennum vinnumarkaði getur atvinna með stuðningi (AMS) hentað en sú þjónusta er á vegum Vinnumálastofnunar.

Sjá nánar hér: https://www.vinnumalastofnun.is/umsoknir/umsokn-um-adstod-i-atvinnuleit-vegna-skertrar-starfsgetu

Fatlað fólk sem ekki er fært um að sinna almennum störfum og þarf umfangsmeiri aðstoð getur sótt um verndaða vinnu, hæfingu og virkniþjálfun sem sniðin er að þörfum hvers og eins hvað varðar stuðning, tímalengd og verkefni.

Sjá nánar hér: https://www.vinnumalastofnun.is/umsoknir/umsokn-um-verndada-vinnu-haefingu-og-virknithjalfun

Vinnumálastofnun tekur við umsóknum og boðar þig í kjölfarið í viðtal þar sem næstu skref eru ákveðin.

Sjá nánar hér: https://www.vinnumalastofnun.is/umsoknir/umsokn-um-verndada-vinnu-haefingu-og-virknithjalfun

Ef að niðurstaðan er sú að vernduð vinna, hæfing eða virkniþjónusta henti þér sendir Vinnumálastofnun málið áfram til viðeigandi sveitarfélags.

Á Austurlandi er hæfing/iðja staðsett í Stólpa, Lyngási 2, 700 Egilsstöðum.

Akstursþjónusta:

Fatlað fólk sem getur ekki nýtt sér almenningssamgöngur eða eigið farartæki getur átt rétt á akstursþjónustu. Aksturþjónustan er ætluð einstaklingum sem eiga lögheimili í Fjarðabyggð sem vegna skertrar líkamlegrar og andlegrar færni sem rekja má til fötlunar þurfa stuðning við að sækja atvinnu, nám og/eða notið tómstunda og afþreyingar.

Megintilgangur er að fólk geti stundað vinnu, nám, notið heilbrigðisþjónustu, hæfingar og þjálfunar hvers konar og tómstunda. Þjónustusvæði akstursþjónustu er Fjarðabyggð.

Styrkir til náms- og verkfærakaupa:

Fatlað fólk getur átt rétt á styrk, annars vegar til að greiða námskostnað og hins vegar til að kaupa verkfæri eða tæki. Markmið styrkjanna er að auka þátttöku fatlaðs fólks í félagslífi og atvinnu með því að auðvelda því að afla sér menntunar, færni og reynslu.

Umsóknir eru afgreiddar einu sinni á ári í mars.

Aðstoðarmannakort:

Aðstoðarmannakort er ætlað þeim einstaklingum sem þurfa aðstoð aðstoðarmanns til þess að geta farið í sund í sveitarfélaginu Fjarðabyggð. Með aðstoðarmannakorti fær aðstoðarmaður umsækjanda frítt í sund þegar hann fylgir þeim einstaklingi sem kortið er skráð á.

Mat ráðgjafa fjölskyldusviðs liggur til grundvallar samkvæmt viðmiðum s.s. SIS mati og mati á stuðningsþörf.