Sorphirða og Endurvinnsla
Fjarðabyggð er vel á veg komið í umhverfismálum og gaman hefur verið að sjá hversu mjög ásýnd bæjarkjarnanna hefur breyst til hins betra á undanförnum árum.
- Fyrirtækið Kubbur ehf. annast sorphirðu, safna úrgagni úr tunnum sveitarfélagsins samkvæmt sorphirðudagatali.
- Hringrás EHF mun sjá um akstur á lífrænum úrgangi frá söfnunarstöðum sveitarfélagsins til moltugerðar hjá Moltu EHF.
- GS lausnir munu sjá um þjónustu við söfnunarstöðvar Fjarðabyggðar. Í því felst leiga á gámum fyrir allar söfnunar- og móttökustöðvar ásamt losun á gámum á svæðinu.
- Terra umhverfisþjónusta mun sjá um móttöku á endurvinnsluefnum úr grænu tunnunni og flokkun þess.
Þriggja tunnu kerfi
Í Fjarðabyggð er notast við þriggja tunnu sorptunnukerfi í Fjarðabyggð. Gráa-, Græna- og Brúna tunnan eru allar losaðar á þriggja vikna fresti.
Sótt er um nýjar sorptunnur inná íbúagátt Fjarðabyggðar undir ,,umsóknir" og ,,umhverfis- og skipulagssvið".
Yfirfullar tunnur
Tunnur skulu ekki fylltar meira en svo að þeim sé hægt að loka. Yfirfullar tunnur geta valdið vandræðum og sóðaskap þegar þær eru losaðar. Yfirfullar tunnur verða ekki losaðar og er íbúm bent á móttökustöðvar.
Brúna tunnan
Brúna tunnan er fyrir lífrænan úrgang. Í hana mega fara allir matarafgangar sem og annar lífrænn úrgangur sem til fellur á heimilum. Dæmi um lífrænan úrgang: Afskurður af ávöxtum og grænmeti, kjöt- og fiskafgangar, brauðmeti, kaffikorgur og tepokar.
Hægt er nálagst flokkunartöflu fyrir Brúnu tunnuna hér: Flokkunartafla - Brúna tunnan.
Athugið að ef misbrestur er á flokkun efnis í brúnu tunnuna er líklegt að hún verði ekki tæmd.
Græna tunnan
Grænan tunnan er fyrir endurvinnanlegan heimilsúrgang. Í tunnuna má setja allan pappír heimilisins, bylgjupappa og pappa, plast, minni málmhluti (t.d. niðursuðudósir, málmlok af glerkrukkum) og fernur. Mikilvægt er að hreinsa allar umbúðir vel og skola fernur áður en þær fara í tunnuna.
Hægt er að nálagst flokkunartöflu fyrir Grænu tunnuna hér: Flokkunartafla - Græna tunnan
Athugið að ef misbrestur er á flokkun efnis í grænu tunnuna er líklegt að hún verði ekki tæmd.
Gráa tunnan
Gráa tunnan er fyrir allan úrgang sem ekki flokkast í skilgreinadn emdurvinnsluferil. Dæmi: Gler, bleyjur, frauðplast og stór bein.
Athugið að ef misbrestur er á flokkun efnis í gráu tunnuna er líklegt að hún verði ekki tæmd.
Ef tunnur eru ekki tæmdar samkvæmt sorphirðudagatali, eða koma þarf á framfæri athugasemdum er varða sorphirðu, er það gert í gegnum ábendingakerfi Fjarðabyggðar.
Næsta losun á sorpi
Sláðu inn götuheiti og fáðu upp sorphirðudagatal fyrir það svæði*
*Sorphirðudagatalið er til viðmiðunar. Veður, veikindi og bilanir geta haft áhrif á losun.
Fatagámar
Norðfjörður: Við afgreiðslustöð Flytjanda Egilsbraut 6.
Reyðarfjörður: Við afgreiðslustöð Flytjanda Nesbraut 5.
Eskifjörður: Við þjónustumiðstöð Fjarðabyggðar Strandgötu 6.
Fáskrúðsfjöður: Við starfstöð Rauða Krossins Grímseyri 9.
Stöðvarfjörður: Við Rauða kross búðina Fjarðarbraut 46.
Breiðdalsvík: Við áhaldahús Selnesi 14.
Nytjahlutir
Við Egilsbraut 8 í Neskaupstað er hátt hús staðsett fyrir neðan kirkjuna sem heitir Steinninn. Steinninn nytjamarkaður er þar til húsa, í kjallaranum. Hægt er að fara þangað með nytjahluti á opnunartíma markaðarins.
Þá rekur Rauði kross Íslands á Austurlandi verslanir fyrir notuð föt eða nytjahluti á Eskifirði og Stöðvarfirði
Garðaúrgangur
Íbúar geta losað sig við garðaúrgang á eftirfarandi stöðum. Við viljum benda íbúum á að tæma garðaúrgang úr pokum við losun. Plast getur tekið allt að 100 ár að brotna niður í náttúrunni.
Norðfjörður: Losað við Naustahvamm
Reyðarfjörður: Innan við móttökustöðina á Hjallaleiru 8
Eskifjörður: Losað neðan við bæinn Eskifjörð.
Fáskrúðsfjörður: Losað í gryfju við hlið söfnunarstöðvar.
Stöðvarfjörður: Losað við Byrgisnes.
Breiðdalsvík: Losað við Þórðarhvamm.