mobile navigation trigger mobile search trigger
24.03.2023

Deildarstjóri sérkennslu við Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar

Leitað er að lausnamiðuðum leiðtoga til að annast skipulagningu sérkennslu í skólanum.

Í Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar eru tæplega 110 nemendur. Skólinn er hluti af Skólamiðstöð þar sem náin samvinna er við leikskóla, tónlistarskóla og bókasafn. Mikil áhersla er lögð á teymisvinnu á öllum sviðum skólastarfsins og sameiginlegri ábyrgð í starfi, ekki síst í stjórnendateymi, umsjónarkennarateymum og lausnarteymi skólans.

Í Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar er mikil áhersla lögð á velferð nemenda og starfsfólks og litið svo á að hún sé lykillinn að árangri í öllum verkefnum. Skólinn fylgir eineltisáætlun Olweusar og vinnur samkvæmt uppeldisaðferðunum Uppeldi til ábyrgðar og ART. Skólinn tekur virkan þátt í ýmsu þróunarstarfi með öðrum skólum í Fjarðabyggð. Kjörorð skólans eru "ánægja, ábyrgð, árangur". Nánari upplýsingar um skólann er að finna á heimasíðu, www.fask.is.

Helstu verkefni: 

  • Annast skipulagningu sérkennslu í skólanum og aðstoða stjórnendur við stefnumörkun
  • Yfirumsjón með umsóknum um frávik og undanþágur fyrir nemendur með sérþarfir
  • Starfa í stjórnendateymi skólans
  • Starfa náið með starfsfólki á fjölskyldusviði

Menntun og hæfniskröfur:

  • Umsækjandi skal hafa leyfisbréf til kennslu í grunnskóla
  • Reynsla af sérkennslu æskileg
  • Viðbótarmenntun í sérkennslu æskileg
  • Færni í mannlegum samskiptum, metnaður og frumkvæði

Starfslýsing deildarstjóra sérkennslu við Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar

Staðan er laus frá 1. ágúst 2023. Launakjör eru samkvæmt samningi LN og KÍ.

Umsóknarfrestur er til 14. apríl.

Umsóknum skal fylgja greinagott yfirlit yfir nám og störf, leyfisbréf til kennslu, ábendingar um meðmælendur sem og almennar upplýsingar um viðkomandi.

Allir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið.

Nánari upplýsingar veitir Viðar Jónsson, skólastjóri, í síma 845-3748, netfang: viddi@skolar.fjardabyggd.is

Sótt er um starfið á ráðningavef Fjarðabyggðar