Verkið felst í að byggja steypta staurabryggju fyrir Fjarðabyggðarhafnir á Eskifirði. Steyptir staurar fyrir bryggjuna hafa þegar verið reknir í jörðu. Helstu verkþættir eru uppsteypa og jarðvinna.
Helstu magntölur eru:
- Gröftur 2.300 m3
- Fyllingar 4.000 m3
- Steypumót 2.000m2
- Bendistál 265.000 kg.
- Steypa 1.400 m3
- Kanttré 200 m
- Uppsetning holplatna 510 stk
- Uppsetning forsteyptra þybbueininga 30 stk
Útboðsgögn verða afhent rafrænt.
Óskir um afhendingu útboðsgagna berist til Marinós Stefánssonar, sviðsstjóra framkvæmdasviðs, marino.stefansson@fjardabyggd.is, frá og með miðvikudeginum 17. nóvember 2021.
Tilboð skulu hafa borist Fjarðabyggðarhöfnum, eigi síðar en miðvikudaginn 8. desember 2021 klukkan 14:00, þar sem þau verða opnuð.