Heimsendur matur
Einstaklingar sem búa í heimahúsum og eru ekki færir um matseld eiga kost á að sækja um heimsendan mat. Matur er sendur heim í hádegi á virkum dögum.
Greitt er fyrir þjónustuna samkvæmt gjaldskrá.
Umsóknarferli
Umsóknir má senda í tölvupósti á felagsthjonusta@fjardabyggd.is
Nauðsynleg fylgigögn með umsókn eru læknisvottorð eða hjúkrunarbréf.
Umsóknareyðublað fyrir heimsendan mat má nálgast í Íbúagátt Fjarðabyggðar.