Stuðningsfjölskyldur
Fjölskyldur fatlaðra barna geta sótt um stuðningsfjölskyldu. Hlutverk stuðningsfjölskyldna er að taka fatlað barn í umsjá sína í skamman tíma í þeim tilgangi að létta álagi af fjölskyldu þess og gefa börnunum möguleika á aukinni félagslegri þátttöku. Samið er um ákveðinn dagafjölda í mánuði, oftast 2-3 sólarhringar og foreldrar eru hafðir með í ráðum um val á fjölskyldu.
Þörf fyrir þjónustu er metin í hverju tilfelli fyrir sig út frá fötlun barns og aðstæðum fjölskyldu. Heimilt er í sérstökum tilfellum að veita einstaklingum eldri en 18 ára þjónustu stuðningsfjölskyldu.
Umsóknareyðublöð er hægt að nálgast og skila á Íbúagátt Fjarðabyggðar.