mobile navigation trigger mobile search trigger

Fjármála- og greiningarsvið

Fjármálasvið hefur umsjón og eftirlit með fjármálalegri starfsemi sveitarfélagsins og stofnana þess. Það sér um innheimtu og álagningu gjalda, undirbúning að gerð fjárhagsáætlunar, eftirlit með ráðstöfun fjárveitinga stofnana innan ársins og færslu bókhalds fyrir bæjarsjóð og stofnanir hans, ásamt kostnaðareftirliti og innkaupastjórn.

Fjármálasvið sér einnig um gerð ársreiknings fyrir bæjarsjóð og stofnanir í samráði við endurskoðendur bæjarins.  Sviðið er stoðsvið sem veitir þjónustu þvert á fagsvið sveitarfélagsins.

Fjármálastjóri

Fjármálastjóri ber ábyrgð á rekstri fjármálasviðs og þjónustu þess gagnvart íbúum, stjórnendum og starfsmönnum og kjörnum fulltrúm Fjarðabyggðar.  Hann stýrir gerð fjárhags- og starfsáætlana og vinnslu og gerð ársreiknings Fjarðabyggðar og stofnana. 

Hann ber ábyrgð á undirbúningi að  stefnumótun í fjármálum, yfirumsjón með rekstrareftirliti og tillögum til að auka hagkvæmni og skilvirkni í rekstri.  Hann ber ábyrgð á innkaupamálum, samræmingu þeirra og eftirfylgni.  Hann ber einnig ábyrgð á  fjárreiðum Fjarðabyggðar og álagningu og innheimtu allra gjalda.

 

Starfsfólk fjármála- og greiningarsviðs

Nafn Starfsheiti Símanúmer Netfang
Ásta Árnadóttir Innheimtufulltrúi 470 9023 Netfang
Bea Meijer Aðalbókari 470 9064 Netfang
Kristinn Á. Þorsteinsson Gjaldkeri 470 9094 Netfang
Snorri Styrkársson Fjármálastjóri 470 9032 Netfang
Hanna Dóra Helgudóttir Sérfræðingur 470 9033 Netfang
Jóhann Gunnsteinn Harðarson Fjármálastjóri fjármálasviðs 470 9098 Netfang