mobile navigation trigger mobile search trigger
04.12.2023

Tónlistarkennarar óskast

Við Tónlistarskóla Fáskrúðsfjarðar, Stöðvarfjarðar og Breiðdals vantar píanókennara til starfa í fullt starf. Ráðið er í starfið frá 15. janúar 2024. Kostur er ef viðkomandi getur kennt á fleiri hljóðfæri.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Kennsla nemenda í samræmi við þarfir þeirra og samkvæmt aðalnámskrá og skólanámskrá.
  • Undirbúningur nemenda fyrir próf, tónleika, tónfundi, sýningar og aðra tónlistarviðburði.
  • Skipulag og utanumhald á kennslu eigin nemenda.
  • Samskipti við forráðamenn og samstarfsfólk.
  • Þátttaka í skipulagningu og framkvæmd tónleika og annarra tónlistarviðburða.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Tónlistarkennaramenntun eða haldgóð tónlistarmenntun sem nýtist í starfi
  • Færni í mannlegum samskiptum
  • Hreint sakavottorð

Starfslýsing tónlistarkennara

Í Tónlistarskóla Fáskrúðsfjarðar, Stöðvarfjarðar og Breiðdals eru tæplega 100 nemendur og eru flestir á grunnskólaaldri. Kennsla fer fram á skólatíma grunnskóla að mestu leyti og eru tónlistarkennslustofur í sama húsnæði og grunnskólarnir. Mjög gott samstarf er við grunn- og leikskóla.

Undanfarin ár hafa fimm kennarar verið starfandi við skólann. Mikið og gott samstarf er milli kennara og skólinn kennir eftir hugmyndafræði lærdómssamfélagsins.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum sveitarfélagsins og FT/FÍH.

Umsóknarfrestur er til 20. janúar, 2024.

Einstaklingar af öllum kynjum eru hvött til að sækja um stöðuna.

Nánari upplýsingar veitir Valdimar Másson, skólastjóri, í síma 4759035, 8359035 eða á netfanginu tonfast@fjardabyggd.is

Sótt er um starfið inná ráðningarvef Fjarðabyggðar

Frétta og viðburðayfirlit