mobile navigation trigger mobile search trigger
01.07.2024

Göngubrúin yfir Búðará endurbyggð

Göngubrúin yfir Búðará var endurbyggð nú á dögunum og var verkið klárað í gær sunnudag. Launafl sá um að endurbyggja brúnna. Göngubrúin tengir saman gönguleiðir austan og vestan árinnar og er stór áfangi fyrir aðgengi almennings að vinsælu útivistarsvæði á Reyðarfirði. Brúin var fyrst byggð árið 2015 en skemmdist mikið í óveðrinu haustið 2022. 

Göngubrúin yfir Búðará endurbyggð

Rafveita Reyðarfjarðar, sem þá var, stóð straum af framkvæmdinni, en Landsnet og Alcoa Fjarðaál veittu verkinu fjárstuðning.  Agnar Olsen, verkfræðingur, hannaði brúnna og Launafl sá um brúargerð.

Rafveita Reyðarfjarðar tók til starfa árið 1930, en virkjun Búðarárinnar var á þess tíma mælikvarða mikið þrekvirki. Rafveitan tengdist samveitukerfi RARIK árið 1958. 

Fleiri myndir:
Göngubrúin yfir Búðará endurbyggð
Göngubrúin yfir Búðará endurbyggð
Göngubrúin yfir Búðará endurbyggð

Frétta og viðburðayfirlit